Áhugavert
07.01.2012 21:50:03 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Minstrels-ostakökueftirréttur



Minstrels-ostakökueftirréttur

50 gr engiferkexkökur, muldar

50 gr smjör, mjúkt

 

Myljið kexkökurnar niður í matvinnsluvél þar til þær eru orðnar að fínni mylsnu. Bætið smjrinu saman við og þrýstið kexblöndunni í botninn á bökunarformi. Kælið

 

250 gr rjómaostur

150 gr flórsykur

1 tsk vanillusykur

2 dl rjómi, þeyttur

170 g Minstrels (1 poki)

 

Þeytið rjómaost, flórsykur og vanillusykur vel saman og bætið rjómanum varleg saman við. Jafnið blöndunni yfir kexbotninn og raðið Minsrels yfir.


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.01.2012 21:48:59 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Létt salatdressing með ab-mjólk, sýrðum rjóma með hvítlauk



Létt salatdressing með ab-mjólk, sýrðum rjóma með hvítlauk

og sætu chilli

 

 

Innihald:

2 dl ab-mjólk

100 g sýrður rjómi með hvítlauk

2-3 msk sæt chili sósa

Salt og pipar eftir smekk

 

Aðferð:

Hrærið öllu vel saman

 

Athugið:

Ef á að laga ídýfu þá má hræra sömu uppskrift án ab mjólk og b setja 200 g gríska jógúrt í staðinn.

 

Uppskrift frá MS.


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.01.2012 21:46:52 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Tex mex fiskur



Tex mex fiskur

 

Fyrir 4-6

 

 

Innihald:

800 g ýsa eða annar góður fiskur

180 g sýrður rjómi 18%

250 g smurostur Tex mex

1 stk meðalstór laukur

1 stk græn paprika

Salt og nýmulinn svartur pipar

1 handfylli nachos flögur

Aðferð:

Skerið ýsuna í bita og raðið í eldfast mót. Kryddið með salti og nýmuldum svörtum pipar. Saxið grænmetið og setjið yfir fiskinn. Hrærið saman sýrða rjómanum og smurostinum og hellið yfir fiskinn. Að lokum myljið yfir nachosflögur.

 

Bakið við 180°C í 25 – 40 mínútur,fer eftir því hvort formið er stórt eða lítið.

 

Uppskrift frá MS.


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.01.2012 21:45:50 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Graskerssúpa með gulrótum, papriku, lauk, lime o.fl.



Graskerssúpa með gulrótum, papriku, lauk, lime o.fl. 

 

Eitt grasker (ekki þessi stóru),

nokkrar gulrætur

og smá af papriku.

 

Sauð þetta í litlu vatni þangað til það er tilbúið að maukast. Svissaði lauk og örlítið af hvítlauk í potti. Mauka þetta svo allt saman og smá Maldon salt, piparblöndu, paprikuduft, hálfan grænmetistening og kreisti hálft lime út í. Ég hef súpuna frekar þykka.. ef hún er of þykk er bætt vatni í.


Uppskrift frá Helgu Sig.


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.01.2012 21:44:22 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Epla rauðrófu salat


Epla rauðrófu salat



1 dós 18 % sýrður rjómi

1 slétt full msk af sykri

2 rauð epli, skrælð og brytjuð niður í litla bita

2 græn epli,skrælð og brytjuð niður í litla bita

1 lítil dós af rauðrófum (skera í teninga)

1 1/2 peli þeyttur rjómi

rauð steinlaus vinber skorin í tvennt.

Byrja á því að þeyta rjóman og blanda sýrða rjómanum varlega saman við og setja restina útí rjómablönduna.

 

Þetta salat er alveg möst með jólasteikinni og er alveg hrikalega gott. Gott er að gera þetta daginn áður og þetta salat dugar vel fyrir 6-8 manns

Verði ykkur að góðu

Sigrún


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.01.2012 21:42:53 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Nammi namm með hunangi



Nammi namm með hunangi

60-80 stykki

 

Innihald:

150 g sólkjarnafræ

100 g hunang

200 g suðusúkkulaði

200 g hvítt súkkulaði

80 g palmín

150 g rjómaostur

 

Aðferð:

Ristið sólkjarnafræ á pönnu og setjið í skál. Bræðið hunang, súkkulaði, palmín og rjómaost saman.

Setjið í konfektform ristuð sólkjarnafræ og setjið súkkulaðiblönduna yfir.

Einnig er hægt að setja í form og skera í hæfilega stóra bita

 

Uppskrift frá MS.


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.01.2012 21:40:14 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Kornflakeskökur með gráðaosti



Kornflakeskökur með gráðaosti

60-80 stykki

 

Innihald:

150 g súkkulaði

80 g smjör

100 g síróp, þetta í grænu dósunum

45 g rifinn gráðaostur

100 g salthnetur saxaðar fínt

100 g smáttsaxaðar döðlur

120 g Special K kornflakes

Aðferð:

Bræðið saman súkkulaði, smjör og síróp. Bætið í söxuðum döðlum, salthnetum og gráðaosti hrærið vel saman. Blandið Special K kornflakes að lokum saman við blönduna. Setjið með skeið á bakka eða setjið í konfektform.

 

Uppskrift frá MS


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.01.2012 21:38:36 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Jólaís



Jólaís

 

1 L þeyttur rjómi

6-7 eggjarauður

3 heil egg

230 gr flórsykur

2 tsk vanilludropar 

250 gr saxað toblerone

 

Byrja á því að þeyta rjómann. þrífa skálina þeyta eggjarauður, eggin og flórsykur vel og einnig alveg þangað til að blandan er orðin létt. setja vanilludrop, rjóma og saxað toblerone útí með SLEIF og hræra varlega. Setja í ísbox og setja í frystir. Svo til gaman má geta þá má nota konfekt í stað toblerone eða þá sukkulaðispænir. Svo má setja smá Baileys í stað vanilludropa, fyrir þá sem finnst Baileys gott.

 

Verði ykkur að góðu og Gleðileg jól

Sigrún 


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.01.2012 21:37:41 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Fylltur kalkúnn



Fylltur kalkúnn

 

Kalkúnar eru að verða æ algengari á matarborðum Íslendinga og eru fjölmargir sem elda kalkún yfir hátíðirnar. Margir eru hræddir við að elda fuglinn en það er í raun og veru ekkert að hræðast. Bara finna einhverja góða uppskrift og skella sér í eldamennskuna. 

 

 

2 stk meðalstórir rauðlaukar 

2 stk epli 

200gr skinka 

½ stk sellerí stöngull 

50gr hakkaðar möndlur 

½ stk formbrauð (án skorpu) 

4 msk steinselja 

1 msk timjan 

2msk oregano 

1 stk appelsína, börkur og safi 

Salt og pipar 

2 stk egg 

5msk rauðvín

 

Smjörið er bræt á pönnu g smátt saxaður laukurinn er látinn saman við og steikjast í c.a 10 mín, eða þar til meyr. Eplin eru skorin niður í litla bita, skinkan er skorinn smátt ásamt sellerí. Brauðið er skorið í litla teninga, þá eru kryddjurtirnar saxaðar smátt niður og börkurinn af appelsínunni er rifinn mjög smátt. Þegar laukurinn er tilbúinn er þessu öllu blandað saman. Þá er vökvinn settur saman við, appelsínusafinn, rauðvínið og eggin og allt unnið vel saman.

Setjið fyllinguna inní kalkúninn, en passið að fylla hann ekki alveg þar sem fyllinginn þennst aðeins út. Setjið svo álpappír í opið og þrístið vel á.

 

 

Smjör krydd 

150gr smjör 

1msk Oregano 

1msk Timjan 

1msk Rósmarin 

1 tsk pipar 

½ tsk salt

 

Smjörið er látið bráðna við vægan hita og kryddjurtunum er blandað saman við. Hrærið saman og smyrjið yfir fuglinn áður en hann fer í ofninn og svo á c.a 20 mín fresti.

 

Fuglinn er settur inní 170° heitann ofninn og steiktur í 40 mín fyrir hvert kíló,( fjögur kíló eru þá c.a 2 tíma og 45 mín) síðustu 20 mínútur er hitinn hækkaður í 220° til að fá fallega húð á kjötið. 

Látið fuglinn svo standa undir álpappír í c.a 10-15 mín áður en hann er skorinn.

 

 

Soð 

Allur innmatur 

1 stk laukur 

2 stk gulrætur 

2 stylkar sellerí 

2 stk lárviðarlauf 

Steinseljubúnnt 

Salt og vel af pipar

 

Innmaturinn er steiktur fyrst og brúnaður vel, þá er restinn sett saman við og steikt áfram. Þá er 1 ½ L af vatni sett saman við og soðið við vægan hita í c.a 1 ½ klst. Fleytið allri fitu af ef einhver er á meðan suðan fer fram.

 

 

Sósan 

500gr sveppir 

½ L soð 

½ L rjómi 

Salt og pipar 

Sósujafnari 

 

Athugið að gott er að setja smá af kryddjurtunum sem fóru á fugllinn í sósuna til að skerpa aðeins á bragðinu.

 

 

Kartöflur 

3 stk sætar bökunnar kartöflur 

3 stk bökunnar kartöflur 

2 msk rósmarin

 

Flysjið kartöflurnar og skerið niður í bita. Steikið svo kartöflurnar á pönnu og bætið rósmarin saman við. Bakið svo kartöflurnar á saman hita og fuglinn er athugið að eldunin fer eftir því hversu stórir bitarnir eru.

 

 

Epla salat 

2 stk Epli 

1 dl Rjómi 

½ stk sellerí stilkur 

Vínber 

Dass Sykur

 

Rjóminn er létt þeyttur með sykri, eplin er skorin niður í litla bita og sett saman við rjómann. Sellerí er skorið mjög smátt og sett saman við ásamt litlum bitum af vínberum


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.01.2012 21:37:40 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Fylltur kalkúnn



Fylltur kalkúnn

 

Kalkúnar eru að verða æ algengari á matarborðum Íslendinga og eru fjölmargir sem elda kalkún yfir hátíðirnar. Margir eru hræddir við að elda fuglinn en það er í raun og veru ekkert að hræðast. Bara finna einhverja góða uppskrift og skella sér í eldamennskuna. 

 

 

2 stk meðalstórir rauðlaukar 

2 stk epli 

200gr skinka 

½ stk sellerí stöngull 

50gr hakkaðar möndlur 

½ stk formbrauð (án skorpu) 

4 msk steinselja 

1 msk timjan 

2msk oregano 

1 stk appelsína, börkur og safi 

Salt og pipar 

2 stk egg 

5msk rauðvín

 

Smjörið er bræt á pönnu g smátt saxaður laukurinn er látinn saman við og steikjast í c.a 10 mín, eða þar til meyr. Eplin eru skorin niður í litla bita, skinkan er skorinn smátt ásamt sellerí. Brauðið er skorið í litla teninga, þá eru kryddjurtirnar saxaðar smátt niður og börkurinn af appelsínunni er rifinn mjög smátt. Þegar laukurinn er tilbúinn er þessu öllu blandað saman. Þá er vökvinn settur saman við, appelsínusafinn, rauðvínið og eggin og allt unnið vel saman.

Setjið fyllinguna inní kalkúninn, en passið að fylla hann ekki alveg þar sem fyllinginn þennst aðeins út. Setjið svo álpappír í opið og þrístið vel á.

 

 

Smjör krydd 

150gr smjör 

1msk Oregano 

1msk Timjan 

1msk Rósmarin 

1 tsk pipar 

½ tsk salt

 

Smjörið er látið bráðna við vægan hita og kryddjurtunum er blandað saman við. Hrærið saman og smyrjið yfir fuglinn áður en hann fer í ofninn og svo á c.a 20 mín fresti.

 

Fuglinn er settur inní 170° heitann ofninn og steiktur í 40 mín fyrir hvert kíló,( fjögur kíló eru þá c.a 2 tíma og 45 mín) síðustu 20 mínútur er hitinn hækkaður í 220° til að fá fallega húð á kjötið. 

Látið fuglinn svo standa undir álpappír í c.a 10-15 mín áður en hann er skorinn.

 

 

Soð 

Allur innmatur 

1 stk laukur 

2 stk gulrætur 

2 stylkar sellerí 

2 stk lárviðarlauf 

Steinseljubúnnt 

Salt og vel af pipar

 

Innmaturinn er steiktur fyrst og brúnaður vel, þá er restinn sett saman við og steikt áfram. Þá er 1 ½ L af vatni sett saman við og soðið við vægan hita í c.a 1 ½ klst. Fleytið allri fitu af ef einhver er á meðan suðan fer fram.

 

 

Sósan 

500gr sveppir 

½ L soð 

½ L rjómi 

Salt og pipar 

Sósujafnari 

 

Athugið að gott er að setja smá af kryddjurtunum sem fóru á fugllinn í sósuna til að skerpa aðeins á bragðinu.

 

 

Kartöflur 

3 stk sætar bökunnar kartöflur 

3 stk bökunnar kartöflur 

2 msk rósmarin

 

Flysjið kartöflurnar og skerið niður í bita. Steikið svo kartöflurnar á pönnu og bætið rósmarin saman við. Bakið svo kartöflurnar á saman hita og fuglinn er athugið að eldunin fer eftir því hversu stórir bitarnir eru.

 

 

Epla salat 

2 stk Epli 

1 dl Rjómi 

½ stk sellerí stilkur 

Vínber 

Dass Sykur

 

Rjóminn er létt þeyttur með sykri, eplin er skorin niður í litla bita og sett saman við rjómann. Sellerí er skorið mjög smátt og sett saman við ásamt litlum bitum af vínberum


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.01.2012 21:35:34 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Heilsteikt gæs með fyllingu



Heilsteikt gæs með fyllingu 

 

Fylling 

 

50 g smjör (smjörlíki) 

1 epli flysjað og kjarnhreinsað 

50 – 100 g sveppir 

100 g sveskjur 

100 g rúsínur 

100 g gráfíkjur 

1 tsk. timian 

4 brauðsneiðar 

1½ dl kjúklingasoð 

salt og pipar 

 

Rífið brauðið niður og leggið í bleyti í soðinu. Skerið epli í teninga og steikið í smjörinu ásamt ávöxtunum og sveppunum. Brauðinu blandað vel saman og kryddað. Fyllingin er sett í eina reitta og sviðna gæs sem búið er að nudda með salti og pipar. Hún svo sett á grind. 

Hitið ofn í 200° c og steikið í 15 mínútur. Lækkið svo hitann í 160°c og steikið áfram í 1½ -2 tíma. 

 

Setjið skúffu undir gæsina og í hana: 

Vatn 

2 – 4 súputeninga 

1 gulrót 

1 lauk 

Og ýmislegt annað sem gott er að setja í soð og til er 

T.d. blóðberg, einiber, sellerístilk (eða hvönn), lárviðarlauf, piparkorn o.fl 

 

Sósa 

 

Sigtið ½ l. af soðinu úr skúffunni í pott og bakið upp. Kryddið með salti og pipar. Gott að bæta sósuna með rjóma og ögn af púrtvíni. 

 

Bláber með möndluhrauni 

 

500 g bláber (mega vera frosin) 

3-4 msk strásykur 

1 msk hvítt maísmjöl 

1/2 tsk vanilludropar 

1/2 msk sítrónusafi 

safi úr 1/2 appelsínu 

1/4 tsk kanill 

1/4 tsk múskat 

12 möndlumakkarónukökur 

90 g mylsna (brauðmylsna, kornflex eða það sem fólki dettur í hug) 

1 egg 

2 eggjahvítur 

 

Blandið saman í glerskál bláberjum, sykri, maísmjöli, vanillu, sítrussafa, kanil og múskati. Bragðið á þessu og bætið við sykri ef þurfa þykir. Setjið svo blönduna í ofnfat úr gleri eða leir og bakið hana í ofni í fatinu opnu í 15 mínútur, þar til hún er þykk, safarík og kraumandi. Takið berin úr ofninum og hækkið hitann. Setjið næst möndlumakkarónurnar og mylsnuna í matvinnsluvél og gerið úr því grófa blöndu. Bætið við eggi og eggjahvítum og látið vélina ganga þar til allt er vel blandað. Breiðið blönduna jafnt ofan á bláberin en skiljið eftir 1 cm brún allt í kring. Setjið að lokum fatið aftur í ofninn og bakið í 7-10 mínútur í viðbót. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.01.2012 21:33:54 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Heilsteikt gæs með ávaxtafyllingu og bláberjasósu



Heilsteikt gæs með ávaxtafyllingu og bláberjasósu

1 gæs, reytt og sviðin

 

 

Ávaxtafylling

2 plómur skornar litla bita

1 epli skorið í bita

nokkrar sveskjur

þurrkaðar apríkósur

salt

pipar

skvetta af púrtvíni

Allt sett í skál, kryddað og púrtvíni hellt yfir. Geymist í kæli yfir nótt. Hreinsið gæs vel að innan og skellið fyllingu í, lokið opi með seglgarni. Setjið í ofn á 180-200 gráður í 15-20 mínútur þar til gæs er gullinbrún, lækkið í 140 gráður og steikið í 2 tíma. Ausið yfir á 30 mínútna fresti með safa og fitu sem lekur af henni.

 

 

Bláberjasósa

1 skarlottlaukur smátt saxaður

1 msk smjör

lárviðarlauf

ferskt rósmarín

ferskt blóðberg

1 dl rauðvín

1 dl púrtvín

1 dl bláberjasulta

3 dl villibráðasoð

sósujafnari

fersk bláber

50 g kalt smjör Mýkið lauk í smjöri með kryddi, bætið víni út í ásamt sultu og sjóðið niður um helming. Bætið soði við og þykkið. Bætið köldu smjöri við og hrærið varlega. Látið ekki sjóða. Setjið fersk bláber í sósuskál og hellið sósu yfir.


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.01.2012 21:32:26 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Þristatoppar



Þristatoppar

 

4 eggjahvítur

230 gr púðursykur stífþeytt......

250-300 gr af smáttsöxuðum þristum blandað varlega saman við..

(ég nota alltaf einn poka af smáþristum,það eru 250gr)

 

Sett á bökunarplötu með tveim teskeiðum og bakað við 125 gráðu hita í 40 mín...


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.01.2012 21:31:23 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Daim smákökur



Daim smákökur

 

180 gr smjörlíki stofuheitt

1 bolli púðursykur

¾ bolli sykur

 

2 egg......

1tsk vanilludropar

1 tsk matarsóti

½ tsk salt

2 bollar hveiti

 

150 gr súkkulaði dropar frá nóa síríus

200 gr Daim kúlur

 

hræra sykur og smjörlíki vel saman og bæta svo eggjunum við hræra þar til ljóst og létt, bæta svo þurrefnunum saman við varlega ,svo súkkulaðinu líka varlega

 

setja með teskeið á smjörpappír og baka í 5-7 mín við 180 gráður blástur

 

bollamálið er amerísk bolla mál eða stórir bollar (",)


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.01.2012 21:30:39 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Gratíneraður fiskur



Gratíneraður fiskur

 

Innihald 

800 gr. Fiskur

1/2 ds. Aspas

3 msk. Mayonnaise

2 dl. Súrmjólk

1 stk. Paprika rauð

1 stk. Paprika græn

2 dl. Hrísgrjón

3 tsk. Karrí

Salt og pipar

Olía

 

Aðferð

Sjóðið hrísgrjónin og hreinsið paprikur. Hitið olíu á pönnu, kryddið með 1 tsk. af karrí mýkið paprikurnarí olíunni. Setjið hrísgrjónin á botninn á vel smurðu eldföstu móti, raðið fiskbitum þar á, síðan papriku og aspas. Kryddið með salti og pipar. Mayjonnaise, súrmjólk og rest af karrí hrært saman, þynnið með soðinu af aspasnum. Hellið blöndunni yfir fatið og bakið í u.þ.b. 30 mín í 200°C heitum ofni. Berið fram með góðu salati og brauði.


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 77
Heimsóknir
Í dag:  135  Alls: 214881
Klukkan