|
|
21.06.2010 14:48:06 / Saelkeraklubbur-Ingunnar
Bragðmikill kjúklingabauna réttur
2 dósir niðursoðnar kjúklingabaunir Ólívuolía í steikingu 2 laukar, fín saxaðir 225 g tómatar, fín saxaðir 1 matskeið af hverju eftirfarandi kryddi: Kóriander, cumin, fenugreek, kanill 2 stk grænt chilli, fín saxað ca 2,5 cm fersk engiferrót, röspuð 4 msk. sítrónusafi Salt Hita olíu, skella lauknum á pönnuna og steikja létt smá stund, bæta við tómötum og steikja áfram við meðal hita. Bæta útí kóriander, cumin, fenugreek og kanil og síðan kjúklingabaununum ásamt safanum af þeim og vatni til viðbótar þannig að samtals mæli vökvinn 350ml. Salta og láta síðan malla í 20 mín. Blanda saman í skál sítrónusafa, engifer og chilli. Þessu er bætt útí eftir 20 mínútna suðuna og látið samlagast smá stund. Þá er bara að bera þetta fram með góðum hýðishrísgrjónum eða grófu kúskús (quinoa kúskús alveg frábært). Salat er svo alltaf nauðsyn. Uppskrift frá Sigurlaugu Gísladóttir
»
20.06.2010 12:30:14 / Saelkeraklubbur-Ingunnar
Nachossúpa
3-5 saxaðir laukar 2-3 hvítlauksrif pressuð 1 chillipipar saxaður 1 flaska Granini tómatsafi (1 flaska = 0,75dl) 5 dl kjúklingasoð, 5 dl kjötsoð , heitt vatn og kjötteningur, nauta eða lamba 1-2 tsk. cumin eða kóriander 2 tsk worchester sósa 1 tsk chillipipar eða chilliduft 1 tsk kaninpipar eða venjulegur pipar 2 dósir maukaðir tómatar 1 kjúlli brytjaður niður eða 4 - 6 bringur ( léttsteiktar ) já eða kjúklingaafgangur, gott að brytja kjúklingaafganga og eiga í frysti og setja svo út í súpuna þegar við á. Steikja laukinn (mýkja) ásamt hvítlauki. Allt sett í pott. Súpan látinn sjóða í 2-3 klukkutíma Kjúllinn settur útí síðasta klukkutímann. Rifinn ostur, sýrður rómi, nachosflögur og guacomole sett út í súpuna.... eða hvað sem fólk vill
»
19.06.2010 00:27:05 / Saelkeraklubbur-Ingunnar
Kjúklingaréttur með sólþurrkuðum tómötum (mjög góður)
3-6 kjúklingabringur 250 gr. sveppir Gulrætur eftir smekk 3-4 hvítlauksrif 1 dós rjómaostur með sólþurkuðum tómötum 1/2 - 1 dós sólþurkaðir tómatar (í krukkur) 1/4 liter rjómi svartur pipar 1 stk. teningur kjúklingakraftur Bringur steikar á pönnu. Upp úr olíu og olíu af tömötunum. Sveppir, gulrætur og hvítlaukur steikt á pönnu. Rjómaosturinn bræddur í rjómanum . Kryddað (svartur pipar - kjúklingakraftur). Allt sett í eldfast mót og inn í ofn í ca. 30 mín. V E R Ð I Y K K U R AÐ G Ó Ð U ! Meðlæti hrísgrjón, hvítlauksbrauð og salat
Uppskrift frá Önnu S.Sigurðardóttir
»
17.06.2010 11:12:37 / Saelkeraklubbur-Ingunnar
Kalt sumarpastasalat
f.6-8 250 g pastaskrúfur 250 g pastafiðrildi 1 dós grænarbaunir litla dós 1 dós sveppir 1 dós túnfiskur í vatni steinselja, fersk eða þurkuð. Sjóðið pastað samkv.leiðb. Hellið vatni frá og kælið. Hellið vökvanum af baununum, sveppum og túnfiski og blandið öllu varlega saman við kallt pastað í stórri skál. Látið standa í kæli á meðan sósan er útbúin. SÓSA 11/ 2 dl. majónes má vera létt majónes 3/4 dl. olía 1/2 smátt saxaður laukur 2 smátt söxuð hvítlauksrif 4 msk sítrónusafi 2 tsk. hunang 1 tsk. karrý Blandið öllu samaní skál og hrærið hratt og vel með handþeytara. Ef sósan er of þykk má þynna hana með safanum af túnf.baununum eða sveppunum. Það má líka setja smá rjóma eða sýrðan rjóma saman við ef vill. Allt eftir smekk. Hellið sósunni yfir pastasalatið og blandið varlega saman. Stráið steinselju yfir í lokin. Mjög þægilegt og fljótlegt.
Uppskrift frá Ragnhildi Ragnarsdóttir
»
15.06.2010 17:11:00 / Saelkeraklubbur-Ingunnar
Kryddhjúpuð hörpuskel með hvítlauksmauksósu
300-400 g hörpuskel 2 msk mynta, smátt söxuð 2 msk kóríander, smátt saxað 2 msk steinselja, smátt söxuð 1 msk límónubörkur, ysta lagið, rifið 2 msk rasp Salt og nýmalaður pipar 2 msk olía Setjið allt nema olíu í skál og blandið vel saman. Þræðið síðan hörpuskelinni upp á spjót. Hvílauksmauksósa. 1 l vatn 1 tsk salt 1 heill hvítlaukur, skrældur 1 ½ dl rjómi Salt og nýmalaður pipar Setjið vatn í pott ásamt salti og hleypið suðu upp. Bætið við hvítlausksgeirum út í, látið sjóða með í 10 sek, veiðið þá síðan upp úr og snöggkælið í köldu, rennandi vatni. Endurtakið 5 sinnum. Setjið hvítlaukinn og rjóma í pott og látið sjóða saman í 1 mín. Hellið þá úr pottinum í matvinnsluvél og maukið vel, einnig má nota töfrasprota. Setjið hvítlauksrjómann aftur í pottinn og sjóðið þar til rjóminn fer að þykkna. Smakkið til með salti og pipar. Steikið hörpuskelspjótin í olíu á vel heitri pönnu í 1 mín (eða skellið á grillið). Veltið spjótunum um á meðan. Berið fram með sósunni, salati og góðu brauði.
»
14.06.2010 11:37:12 / Saelkeraklubbur-Ingunnar
Ostakex með sesamfræjum 20-22 kökur
120 gr smjör, mjúkt 100 gr hveiti 100 gr gráðostur eða daneblu-ostur 200 gr sesamfræ Hrærið smjör og hveiti saman í hrærivél. Myljið ost út í og hrærið vel saman, kælið. Í 1 klst. Hitið ofninn í 180°c. Mótið kúlur úr deiginu og veltið þeim upp úr sesamfræjum. Þrýstið létt ofan á kúlurnar með fingrunum og raðið á bökunarpappír. Bakið í 10-12 mín. Kælið.
»
12.06.2010 11:40:54 / Saelkeraklubbur-Ingunnar
Marensterta með karamellubráð 8-10 sneiðar
5 eggjahvítur 100 gr Dansukker púðursykur 100 gr Dansukker strásykur 80 gr kornflögur, gróft muldar 5 dl rjómi, þeyttur Karamellubráð: 2 dl rjómi 80 gr púðursykur 3 msk síróp 30 gr smjör 1 tsk vanilludropar Hitið ofninn í 150°c. Þeytið eggjahvítur og báðar tegundir af sykri saman í 4-5 mínútur. Eða þar til þær verða stífar. Bætið kornflögum út í og blandið með sleikju. Smyrjið 24 cm smelluform eða fóðrið með smjörpappír og skiptið deiginu á milli formanna. Bakið í 1 klst. Takið úr formunum og kælið. Þeytið rjóma og setjið á milli botnanna. Sjóðið 2 dl af rjóma, púðursykru og síróp saman þar til úr verður þykkur massi, þetta tekur u.þ.b. 10 mín. Takið pottinn af hellunni og bætið smjöri út í. Braðbætið með vanilludropum. Kælið karamellubráðina örlítið og hellið síðan yfir kökuna. Gestgjafinn 17.tbl 2008
»
11.06.2010 14:09:08 / Saelkeraklubbur-Ingunnar
Roastbeef með piparrótarsósu
1 ½ kg nautainnralæri Salt og nýmalaður pipar 2 msk olía Kryddið innralæri með salti og pipar og steikið í olíu á vel heitri pönnu á öllum hliðum þar til það er orðið fallega brúnt. Setjið kjötið inn í 120°c heitan ofn í 45 mín. Kælið. Skerið í þunnar sneiðar og berið fram með piparrótarsósu og t.d. steiktum lauk, sýrðum agúrkum og salati. Piparrótarsósa: 2 dl majónes 2 dl sýrður rjómi 1 tsk hunang 1 msk sítrónusafi 1-2 msk piparrótarmauk ½ tsk salt Setjið allt í skál og blandið vel saman
»
10.06.2010 11:01:41 / Saelkeraklubbur-Ingunnar
Reykt silungamús Fyrir 4-6
350 gr reyktur silungur 3 msk ferskt dill 2 msk steinselja ¼ rauðlaukur, gróft skorinn 170 gr létt-rjómaostur ½ Boursin hvítlauksostur 3 msk sýrður rjómi 1 msk sítrónusafi Svartur pipar 2 agúrkur Skerið silunginn í grófa bita. Saxið kryddjurtir og setjið síðan öll hráefnin nema agúrkur í matvinnsluvél og maukið mjög vel. Smakkið blönduna til og kryddið með salti og pipar eftir smekk. Kælið blönduna. Setjið svo blönduna í rjómasprautu og skreytið á agúrkusneiðarnar eða kex. Uppskrift úr gömlum Gestgjafa
»
09.06.2010 11:26:56 / Saelkeraklubbur-Ingunnar
Sítrónu-kartöflugratín með ólífum Fyrir 4-6
6 msk. Ólífuolía 6 stórar kartöflur 1 lítil sítróna 3 litlir hvítlauksgeirar, saxaðir 2 tímíangreinar Gróft salt Svartur pipar 15 svartar eðalólífur Hitið ofninn í 200°c og smyrjið ofnfast mót með 2 msk. Af ólífuolíunni. Þvoið kartöflurnar vel, skerið þær í þunnar sneiðar og setjið í skál. Þvoið sítrónu vel og skerið í sneiðar, setjið í skálina ásamt hvítlauk og afganginum af olíunni. Bætið timíaninu við og kryddið vel með salti og pipar. Blandið öllu vel saman í höndunum. Raðið kartöflunum og sítrónunum í ofnfasta mótið og setjið ólífurnar ofan á. Bakið í u.þ.b. 40 mínútur og hrærið varlega í þegar tíminn er hálfnaður, bætið olíu í ef þarf. Berið fram í eldfast mótinu og kryddið eftir smekk.
»
08.06.2010 10:59:01 / Saelkeraklubbur-Ingunnar
Kanilsteikt epli með trönuberjum Fyrir 4
2-3 epli 1 dl sykur 2 tsk. Kanill 2 msk.smjör 100 gr þurrkuð trönuber 1 dl eplalíkjör, romm eða eplasafi Hitið ofninn í 180c. Skrælið epli og skerið þau í frekar þykkar sneiðar. Blandið saman sykri og kanil. Bræðið smjör á pönnu, veltið eplasneiðunum upp úr kanilsykrinum og steikið þær á báðum hliðum. Setjið sneiðarnar í ofnfast fat, hitið trönuber á pönnunni og hellið þeim yfir eplin. Hellið víni eða eplasafa í fatið og bakið eplin í 10-15 mín. Berið fram með mascapone sósu og skreytið með sykruðum appelsínuberki. Það er líka gott að bera eplin fram með hreinum mascarpone-osti. Mascarpone-sósa: 2 msk flórsykur 2 eggjarauður 200 gr mascarpone-ostur 3 msk sætt eftirréttavín eða líkjör (má sleppa) Hrærið vel saman flórsykur og eggjarauður. Hrærið mascarpone-ost aðeins til að mýkja hann og bætið síðan rjóma, víni og eggjablöndunni út í, hrærið vel saman. Sykraður appelsínubörkur: ½ dl sykur ½ dl vatn Börkur af 1 appelsínu Hitið saman sykur og vatn þar til sykurinn er uppleystur. Rifið appelsínubörk i ræmur (gott er að nota áhald sem gerir mjóar ræmur) og sjóðið hann í sírópinu í 5-8 mín. Kælið
»
07.06.2010 12:12:05 / Saelkeraklubbur-Ingunnar
Brauðterta með MIlls-kavíar
1 gróft brauð, skorið í sneiðar eftir endilöngu, skorpa skorin frá 1 túpa af Mills-kavíar með rjómaosti, 170 gr 1 lárpera 2 msk.Philadelpia-rjómaostur ½ túpa Mills-kavíar 2-3 egg, harðsoðin og söxuð 150 gr surimi-krabbakjöt, saxað, takið nokkra heila bita frá til skrauts ½ agúrka, söxuð Leggið eina brauðlengju á fat eða bakka. Smyrjið lagi af Mills-kavíar með rjómasti ofan á, notið u.þ.b. helminginn úr túpunni. Maukið lárperu gróft og blandið Philadelpia-rjómaosti saman við. Takið smávegis af lárperumaukinu frá til að setja ofan á tertuna og smyrjið síðan afganginum af því á brauðlengjuna. Leggið aðra brauðlengjuna ofan á. Smyrjið með Mills kavíar og dreifið söxuðum eggjuð yfir. Leggið lengju af brauði ofan á og smyrjið með afganginum af Mills kavíar með rjómaosti, setjið surimi-krabbakjöt og agúrku ofan á. Leggið eina brauðlengju ofan á að lokum. Smyrjið brauðtertuna að utan með sýrðum rjóma og þekið hliðarnar með söxuðu káli. Skreytið með lárperumauki, papriku, surimi og kirsuberjatómötum. Skraut ofan á: 1 dl sýrður rjómi ¼ haus jöklasalat 40 gr klettakál ¼ gul paprika ¼ rauð paprika Nokkrir kirsuberjatómatar Hér er saxað kál sett á hliðarnar á brauðtertunni. Það gerir hana létta og skemmtilega og eftirleikurinn við skreytingu ofan á verður aðveldari.
»
06.06.2010 12:58:43 / Saelkeraklubbur-Ingunnar
Ostakaka
250 gr makkarónukökur 100 gr ísl smjör brætt yfir kökurnar og þjappað saman í botninn
200 gr flórsykur 1 dós rjómaostur 3 tsk vanillusykur þetta hrært saman
1/2 lítri rjómi þeyttur blandaður saman við
krem: 150 gr súkkulaði brætt 1 dós sýrður rjómi 1 msk olía þessu blandað saman og sett yfir kökuna
Verði ykkur að góðu auðvelt og fljótlegt
Uppskrift frá Hrefnu

»
04.06.2010 12:09:20 / Saelkeraklubbur-Ingunnar
Djúsí skalotlaukur Skalotlaukur verður ótrúlega góður eldaður á grillinu.
300-500 gr skalotlaukur Olía Nokkrir tímíankvistir Maldon-salt Svartur pipar Veltið skalotlauk upp úr olíu og leggið hann síðan á álpappír. Stráið tímíankvistum yfir og kryddið með salti og pipar. Pakkið lauknum vel inn í álpappírinn og grillið í 10-15 mín. Við meðalhita. Snúið þá pakkanum við og grillið áfram í 10-15 mín.
»
03.06.2010 11:58:22 / Saelkeraklubbur-Ingunnar
Mangó drykkur Fyrir 4
1 mangó, skorið í bita 2 ½ dl kalt vatn 2 ½ dl jógúrt eða AB-mjólk 2 tsk hrásykur Nýmalaður svartur pipar á hnífsoddi Setjið mangó í matvinnsluvél eða blandara ásamt helmingnum af vatni og hrærið vel saman. Bætið jógúrti, sykri og afganginum af vatninu saman við og hrærið áfram þar til blandan er orðin mjúk og froðukennd. Hellið í glös, stráið pipar yfir og berið fram strax.
»
Síður: 1 2
|
Heimsóknir
Í dag: 16 Alls: 557020
|