Áhugavert
29.06.2011 23:35:02 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Barbeque kjúkklingabringur með gráðuostasósu.



Barbeque kjúkklingabringur með gráðuostasósu.

 

Fyrir 4.

 

Fyrir kjötið

 

4 kjúkklingabringur

Góð Barbequesósa (baby ray barbeque sósu sem fæst í Kosti er mjög spicy og góð)

salt

pipar.

 

Mér finnst gott að skera bringurnar aðeins til svo að þær verði

flatari og jafnari á grillinu. Sú aðferð sem ég nota er að skera í þær

að aftan verðu þar sem þær eru svolítið opnar og búa til stærri þinnri

steik. Svo eru þær lagðar í barbeque sósu eftir smekk og saltaðar og

pipraðar. Gott er að hafa þær í mareneringu í 4 tíma, það kemur samt

alveg gott bragð þó að þær séu grillaðar strax.

Þær eru svo grillaðar á meðalheitu grilli í 10-20 mín, það fer eftir

þykkt. Hér er um að gera að nota sínar flottustu grillaðferðir:)

 

Gráðuostasósa

 

þetta er tvöföld uppskrift því að þessi sósa er æðislega góð og hægt

að gæða sér á henni með fersku grænmeti eða grillbrauði seinna.

 

3 dl mayones

125 gr gráðuostur

2 hvítlauksgeirar

4 matskeiðar söxuð steinselja

2 matskeiðar ferskur sítrónu eða lime djús

2 matskeiðar borðedik

pipar

 

Gráðuosturinn er mulinn og allt blandað saman nema piparinn. Svo er

þetta smakkað til með pipar. Gott er að láta sósuna standa í 2 tíma í

ískáp.


Uppskrift frá Tinnu Hrund


 


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.06.2011 12:08:24 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Grillaðir sveppir....


Grillaðir sveppir.

 

Fyrir 4

 

1 askja sveppir

1 askja rjómaostur hreinn

pipar

álpappír

 

Stönglarnir eru teknir innan úr sveppunum og smurt vel af smurostinum

svo að yfirborðið sé slétt. Næst er stráður pipar. Það er líka allt í

lagi að salt eftir smekk en athuga þarf að oft er grillkjöt og sósa

sem borðað er með sölt og þá þarf ekkert að salta sveppina.

Sveppirnir eru settir í álpappír og pakkaðir inn. Þeir þurfa að vera á

grillinu á meðalhita (best að loka grillinu) í 10-15 min.


Tinna Hrund svaraði kalli um hæl og hér kemur ein af hennar sem hún sendi okkur, takk Tinna :)


» 14 hafa sagt sína skoðun

24.06.2011 22:28:05 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Hrökkbrauðið Hrjúfa


Hrökkbrauðið Hrjúfa

1 dl sólblómafræ
1 dl graskersfræ
1 dl hörfræ
1 dl sesamfræ
1 dl gróft haframjöl
3 ½ dl spelthveiti
1 ¼ dl olía
2 dl vatn
2 tsk salt

Blandið öllu saman í skál og hrærið þar til deigið er vel blandað
(linur massi). Setjið bökunarpappír á bökunarplötu og helminginn af deiginu á pappírinn, setjið bökunarpappír yfir deigið og fletjið út með kökukefli. Helmingurinn af deiginu passa ca. Á eina bökunarplötu. Gerið það sama við hinn helminginn af deiginu. Skerið deigið í þá stærð sem þið viljið hafa kökurnar í áður en bakað er. Gott að strá t.d. Maldon salti, kryddi eða osti á til tilbreytingar. Kúmen er líka mjög gott og setja t.d papaya bita út í

Bakist í 10-15 mín við 200 gráður eða þar til hrökkbrauðið er stökkt.
Geymið hrökkbrauðið í loftþéttu boxi til að það verði ekki seigt.

PS: mjög gott að skera deigið með pitsuskera


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.06.2011 22:26:53 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Sítrónuhvítlaukskjúklingur



Sítrónuhvítlaukskjúklingur

Hráefni:

800 g kjúklingabringur

sjávarsalt og nýmalaður pipar

safi úr 1 sítrónu

börkur af 1 sítrónu

4 hvítlauksrif söxuð

 

Leiðbeiningar: 

 

Blandið saman hvítlauk, sítrónusafa og sítrónuberki og kryddið vel með salti og pipar, nuddið maukinu vel á bringurnar, látið standa í 4-6 tíma í kæli eða 2 tíma á borði og grillið í 14-16 mín. við miðlungshita.

 

Prosciuttovafinn aspas

 

16 stk grænn ferskur aspas (hreinsaður)

8 sneiðar Prosciutto-skinka

sjávarsalt og nýmalaður pipar

 

Sjóðið aspasinn í 2 mínútur í léttsöltuðu vatni og setjið svo strax í ísvatn og kælið. Takið 2 sneiðar af skinkunni og 4 stk af aspas og vefjið skinkunni utan um. Kryddið með pipar. Grillið við meðalhita í 7-8 mín.


Uppskrift frá Nóatúni.....


 


» 25 hafa sagt sína skoðun

20.06.2011 21:49:42 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Byggbrauð / byggbollur með geri.


Byggbrauð / byggbollur með geri.


Hráefni:

1 dl byggmjöl

1 dl soðið Bankabygg

3 dl hveiti

1 dl heilhveiti

1/2 dl hveiti­klíð

3 tsk þurrger

3 dl volg undanrenna

1 msk matarolía

1 msk sól­blómafræ

1 msk sesam­fræ

1 msk hörfræ

1 dl fjalla­grös

1/2 dl rúsínur

 

Aðferð:Blandið saman þurrefnum ásamt þurrgeri (takið frá 1/2 -1 dl af hveiti til að hræra upp í deigið á eftir). Hellið olíu og undanrennu út í þurrefnin og hrærið vel með sleif (deigið má vera blautt). Stráið hveiti undir og yfir deigið og látið það lyfta sér á hlýjum stað í hálftíma. Hnoðið afgangshveitinu saman við ef þarf. Mótið lengju úr deig­inu og skiptið henni í 10-12 jafnstóra bita. Mótið bollur úr bitunum og raðið á bök­unarplötu. Látið deigið hefast á hlýjum stað í 15-20 mín. Penslið bollurnar með vatni eða mjólk. 

 

Bakið í miðjum ofni við 200 C í 15 mín. (brauð í 45 mín.). Ath. ef notað er perluger er það leyst upp í 1 1/2 dl af volgu vatni í 5-10 mín og 1 1/2 dl af mjólk er síðan blandað saman við.


Birt með fullu leyfi Eygló frá Móður Jörð


» 24 hafa sagt sína skoðun

20.06.2011 21:49:11 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Engifer- og púrtvínsmarineruð lambaspjót



Engifer- og púrtvínsmarineruð lambaspjót


Hráefni:

8-10 tréspjót

800 g beinlaust lambakjöt

t.d. innralæri, rib eye, fillet

jómfrúarolía

 

Marineringin

 

200 ml púrtvín

2 msk sykur

2 msk ferskt engifer saxað

4 hvítlauksgeirar, saxaðir

2 rósmarínstilkar

sjávarsalt og nýmalaður pipar

2 msk jómfrúarolía

 

Leiðbeiningar: 

 

Blandið saman öllu sem á að fara í marineringuna og kryddið með salti og pipar. Skerið kjötið í 2 cm bita og setjið í marineringuna og látið standa í 3-4 tíma eða yfir nótt en ekki lengur því þá tekur púrtvínið yfir kjötbragðið. Þræðið kjötið upp á spjótin og grillið við góðan hita í

2-3 mín á hvorri hlið.

 

Kartöflusalat að frönskum hætti

 

1 kg litlar kartöflur

sjávarsalt og nýmalaður pipar

1 stór skalottlaukur, saxaður

1 búnt fáfnisgras

1 msk eplaedik

2 tsk Dijon sinnep

1 tsk kornótt sinnep

2 msk jómfrúarolía

2 msk valhnetuolía

2 tsk hunang

 

Sjóðið kartöflurnar í söltu vatni, hrærið saman í dressinguna á meðan og kryddið hana með salti og pipar. Sigtið kartöflurnar og skerið í tvennt, setjið í skál ásamt lauknum og fáfnisgrasinu og meðan kartöflurnar eru enn heitar bætið þá dressingunni út í og blandið saman og berið fram strax.


Uppskrift frá Nóatúni......


» 9 hafa sagt sína skoðun

18.06.2011 13:23:07 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

BBQ Grísarif


BBQ Grísarif

Hráefni:

2 ½ kg grísarif

Cape spicy barbeque seasoning

2 flöskur Jack Daniels barbequesósa

2 dósir bjór eða léttöl

 

Leiðbeiningar: 

 

Kryddið rifin mjög vel með kryddinu og grillið í 5 mín á hvorri hlið. Setjið síðan yfir í pott og hellið bbqsósunni og bjórnum yfir, látið fljóta yfir kjötið og sjóðið við vægan hita í 2 klst.

 

Takið svínarifin úr pottinum og berið fram með sósunni fersku salati og kartöflum. Síðan er bara best að ráðast á safarík rifinn með höndunum og naga eftir að þau hafa verið skorin niður. Nauðsynlegt er að hafa nóg af servéttum við höndina og allrabest að bera fram skolskál með sítrónuvatni fyrir hvern og einn.


Uppskrift frá Nóatúni......


» 22 hafa sagt sína skoðun

17.06.2011 11:56:17 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Gratinerað grænmeti



Gratinerað grænmeti

 

1 góður blómkálshaus

500 gr broccolí


1 góður púrrulaukur


1 rauð paprika


500 gr forsoðnar gulrætur


50 gr smjör


rifinn ostur

 

Grænmetið er þvegið og snyrt, skorið í hæfilega bita og raðað í eldfast mót, smjör og ostur sett yfir og gratinerað í ofni við 180-200°C.


 


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.06.2011 11:44:29 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Grísalundir með ananassalsa


Grísalundir með ananassalsa

Hráefni:

1 kg grísalundir

6 msk jómfrúarolía

1 msk malaður chili pipar

2 tsk salt

1 tsk nýmalaður svartur pipar

1 tsk þurrkað oregano

1 ½ msk saxaður hvítlaukur

3 msk safi úr lime

 

Leiðbeiningar: 

 

Nuddið grísalundirnar með 3 msk af olíu og kryddið svo með chilipipar og 2 msk af salti, pipar og oregano. Nuddið þá hvítlauknum og 1 msk af limesafanum yfir og látið standa í 45 mín. Hitið grillið vel og setjið lundina á heitasta staðinn á grillinu. Grillið lundina í 5 mín á hvorri hlið, lækkið hitann niður í lægstu stillingu og haldið áfram að grilla í 3-4 mín á hvorri hlið. Takið lundina af grillinu, látið standa í nokkrar mínútur, skerið lundina svo niður, hellið kóríandermyntuolíunni yfir og berið fram með ananassalsa.

 

Ananassalsa

 

1 ananas afhýddur og skorinn í sneiðar

3 msk jómfrúarolía

2 rauðlaukar, saxaðir

2 msk jalapeno pipar, saxaður

1 rauð paprika, söxuð

1 msk saxaður ferskur kóríander

 

Penslið ananassneiðarnar með 1 msk olíu og grillið í 4 mín á hvorri hlið, takið af grillinu og látið kólna. Skerið kjarnann úr ananasinum og saxið restina og setjið í skál. Bætið rauðlauk, 2 msk af limesafa, 2 msk af olíu, jalapenopipar, papriku og kóríander, saltið og látið standa á meðan grísalundin er grilluð.

 

Kóríandermyntuolía

 

1 búnt ferskt kóríander

10 fersk myntulauf

2 dl jómfrúarolía

sjávarsalt og nýmalaður pipar

 

Setjið jurtirnar í matvinnsluvél og maukið, lækkið hraðann á vélinni og hellið olíunni varlega fyrst í lítilli bunu út í og kryddið svo með salti og pipar.


Uppskrift úr uppskriftarsafni Nóatúns...



» 11 hafa sagt sína skoðun

12.06.2011 22:59:46 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Share'ing is Care'ing!



Share'ing is Care'ing! 

Viltu deila með okkur uppskriftum, þá vinsamlega sendu á:

saelkeraklubbur.ingunnar@gmail.com


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.06.2011 11:43:10 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Bakaðir humarhalar “mie du pain”.



Bakaðir humarhalar “mie du pain”.

 

 

Forréttur fyrir: 4.

 

 

Humaarhalar í skél =  24 st. (meðalstórir) skornir í tvent eftir endilöngu og görnin

                                   hreinsuð burt með hnífi.

Hvítt brauð, ferskt =  2-300 gr. múllað í mixer.

Hvítlaukur =               6-8 rif. Fínt söxuð.

Steinselja =                 2-4 msk. Fínt söxuð.

Smjör =                       200 gr. brætt.

Salt og pipar.              Eftir smekk.

 

 

 

1.         Raðið humarnum í ofnskúffu, með sárið upp.

 

2.         Mixið saman brauðið, hvítlaukinn, steinselju, salt og pipar í blandara.

 

3.         Stráið brauðmixinu í þéttu lagi yfir humarinn í ofnskúffuni.

 

4.         Dreypið bræddu smjörinu yfir brauðið og humarinn.

 

  1. Bakið réttinn í ofni við háan yfirhita í nokkrar mínútur. Eða þar til að brauðið er orðið gullin brúnt, svo kölluð gratinering.

 

  1. Humarkjötið á að vera létt eldað undir gullinbrúnu brauðinu, ef ekki þá er gott að

minnka hitann og láta humarinn hitna í smá stund.

 

 

 

 

# Þessi réttur er borinn fram með ristuðu brauði og ef til vill hvítvíni.


» 10 hafa sagt sína skoðun

12.06.2011 11:42:58 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Escargots Quiche (sniglar)



Escargots Quiche (sniglar)

(sniglar)

250 gr hveiti

100 gr smjör

5 gr salt

1 dl vatn

 

320 gr laukur

30 gr hvítlaukur

300 gr sniglar

100 gr smjör

200 gr beikon

½ l mjólk

smjörbolla 60 gr smjör og 60 gr hveiti

2 eggjarauður

salt og pipar

 

Deigið er hnoðað, ekki of mikið. Laukurinn er sneiddur og steiktur í smjöri þangað til að hann fer að brúnast. Sósa er löguð úr mjólkinni og jöfnuð með smjörbollunni, krydduð og kæld. Þegar hún er orðin köld er eggjarauðunum bætt út í. Beikonið skorið í strimla og soðið í nokkrar mín, og kælt. Deigið er flatt út og sett í form,(eitt stórt 6 minni). Sniglum, lauk, hvítlauk og beikoni blandað í formið sósan sett yfir og bakað í 20-25 mín við 200-220°C.

 


 


» 28 hafa sagt sína skoðun

12.06.2011 11:42:27 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Rækjur GAMBAS PIL PIL



Rækjur GAMBAS PIL PIL

Spánskur rækjuréttur

 

500 gr rækjur

4 hvítlaukar gróft saxaðir

1 stk rauður chili pipar smátt saxaður

2-3 msk steinselja söxuð

ólífuolía

Blandið saman rækjum, hvítlauk, chili pipar og steinselju og skiptið í sex eldfastar  skálar eða eina stóra, hellið 2-3 msk af olífuolíu yfir blönduna í hverri skál og bakið í 230°C heitum ofni þar til rétturinn er farinn að taka lit. Berið fram með góðu brauði.

 


 


» 37 hafa sagt sína skoðun

06.06.2011 00:40:55 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Snöggmarineraður lax í sítrónu, vermút og basil



Snöggmarineraður lax í sítrónu, vermút og basil

 

1 kg laxaflak

2 tsk grófmalaður hvítur pipar

4 msk salt

3-4 msk sykur

safi úr 1 sítrónu

0,5 dl þurr vermút

2 msk basilka (fersk og fínsöxuð)

 

Blandið saman salti, pipar og sykri. Stráið ca. helmingnum af blöndunni í bakka og leggið þunnar laxasneiðarnar yfir blönduna. Stráðu basilkunni yfir laxasneiðarnar, síðan restinni af sykur og saltblöndunni yfir og dreyptu með þurrum vermút og sítrónusafa. Látið standa við stofuhita í ca. 30 mín, eða eftir þörfum. Laxinn borinn fram um leið og hann er tilbúinn.

Berið fram með piparrótar-rjómasósu og hrærðu eggi.

 

Piparrótar-rjómasósa 

 

1 dós sýrður rjómi

1 msk piparrót

safi úr hálfri sítrónu

 

Öllu hrært vel saman og kælt.

 

Eggjahræra

 

5 egg

1 dl rjómi

1 msk smjör

salt og pipar

 

Egg, rjómi, salt og pipar þeytt vel saman. Smjör set í heitan pott og brætt. Eggjahrærunni hellt út í og hrært í á meðan eggjablandan hitnar (botninn skafinn vel á meðan). Eggjahræran á að vera sósukennd, ekki hraðelduð.Blandan er borin strax fram.

 


 


» 17 hafa sagt sína skoðun

05.06.2011 00:07:09 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Fylltir sveppir



Fylltir sveppir

 

20 stórir sveppir

1 100 gr lauf gráðostur


1 dl rjómi

 

Sveppirnir þvegnir og leggurinn tekinn af þeim. Gráðosturinn hrærður út með rjómanum og sveppirnir fylltir með blöndunni. Þeir bakaðir við 200°C í ca 5 mín.

 


 


» 12 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Heimsóknir
Í dag:  46  Alls: 555111
Klukkan