Pizza með humar og bökuðum hvítlauk
Þetta er pizza blanca eða hvít pizza en það nefnast þær pizzur þar sem ekki er notuð tómatasósa. Áleggið á þessa er ekki af verri gerðinni eða smjörsteiktur humar og ofnbakaður hvítlaukur.
Hráefni:
Einn skammtur pizzadeig:
Heimabökuð pizza
Það er gaman að baka pizzu og móta hana að vild með öllu því sem manni þykir gott. Ef menn nenna ekki eða hafa ekki tíma til að gera deigið sjálfir er hægt að kaupa ágætis tilbúin deig í flestum búðum en svo er auðvitað hægt að taka þett frá a til ö.
Hitið 3 dl af vatni í örbylgjunni þannig að það verði vel volgt. Bætið út í einu bréfi af þurrgeri, teskeið af sykri, klípu af salti og skvettu af olíu hrærið vel saman. Auðvitað er líka hægt - og betra - að nota pressuger.
Setjið 6-7 dl af hveiti í skál. Gott er að nota venjulegt hveiti og fínmalað spelt nokkurn veginn til helminga. Hvað venjulega hveitið varðar þá er Europris-hveitið sterkjumikið og hentar betur en flest önnur í svona bakstur.
Blandið gerblöndunni saman við hveitið og látið deigið lyfta sér í rúman hálftíma á volgum stað.
Setjið smá hveiti saman við deigið og hnoðið það vel. Það á verða teygjanlegt og auðvelt meðferðar, þannig að maður geti nánast togað það og teygt að vild. Mótið deigið á plötuna sem þið ætlið að nota.
Raðið álegginu á pizzuna.
Setjið neðarlega inn í heitan ofninn, á hæsta mögulega hitastig, um 250 gráður eða á grillið.
Til að ná stökkri og fínni pizzu er best að nota svokallaðan pizzastein. Þá er hægt að fá (t.d. Weber Pizza Stone) í grilldeildum margra verslana. Það er best að nota hann á grilli og hita þá vel upp áður en platan með pizzunni er sett á steininn. Steinninn gefur frábæran undirhita auk þess sem meiri hiti næst á góðu grilli en í ofni. Það er hins vegar einnig hægt að nota pizzastein í ofni. Hann þarf hins vegar að hitna vel inni í ofninum áður en bökunarplatan með pizzunni er sett ofan á hann.
Bakið þar til pizzan er orðin stökk og osturinn hefur bráðnað.
25 ofnbökuð hvítlauksrif:
Bakaður hvítlaukur
Bakaður hvítlaukur verður mjúkur og sætur og hægt að nota á margvíslega vegu.
Hitið ofninn í 150 gráður
Skerið "toppinn" ofan af hverjum hvítlauk. Setjið hvítlaukana í þykkan pott eða ofnfast fat með loki. Það er líka hægt að nota minni form og loka með álpappír.
Hellið olíu yfir hvítlaukana. Saltið.
Setjið í ofninn og bakið undir loki í um 55 mínútur eða þar til laukurinn er orðinn mjúkur.
Leyfið lauknum að kólna og losið þá geirana úr hýðinu.
250 g skelhreinsaður humar
1 stór Mozzarellakúla
ólívuolía, extra virgin
Maldon salt og nýmulinn pipar
Aðferð:
Hitið ofninn í 250 gráður.
Fletjið pizzudegið út og penslið vel með ólívuolíu. Smjörsteikið humarhalana á pönnu í örfáar mínútur. Dreifið yfir pizzuna ásamt hvítlauksrifunum. Skerið mozzarellakúluna í sneiðar og dreifið yfir pizzuna. Saltið og piprið eftir smekk.
Bakið pizzuna í 10-15 mínútur.
Með þessu hentar góður Chablis vel eða suður-ítalskt hvítvín.
Uppskrift frá Mbl.