Dúndur ostakaka með hvítu súkkulaði
Frá Berglindi Helgadóttur
Þessi er alveg geggjuð,,,,enda ekki mjög grennandi
100 gr. sætt heilhveitikex t.d. Haust kex
50 gr. brætt smjör
1 peli rjómi
250 gr. rjómaostur við stofuhita
250 gr. mascarpone-ostur við stofuhita
80 gr. sykur
350 gr. hvítt súkkulaði, brætt í vatnsbaði
6 ástaraldin
Setjið kexið í blandara og myljið það þar til það lítur út eins og brauðmylsna. Hellið bræddu smjörinu yfir það og hrærið saman. Þrýstið kexmylsnunni í botninn á lausbotna smelluformi sem klætt hefur verið að innan með plastfilmu. Kælið botninn í ísskáp. Þeytið rjómaostinn og mascarpone -ostinn saman, þar til hann er léttur og laus við kekki, léttþeytið rjómann og bætið saman við rjómaostablönduna. Setjið síðan brædda súkkulaðið varlega saman við.
Gætið þess að þeyta ekki of lengi. Hellið blöndunni þá yfir kexið í mótinu. Kælið kökuna í ísskáp í minnst 3 klst. eða yfir nótt.
Aldinkjötinu úr ástaraldinu er svo sett yfir kökuna. Það er líka allt í lagi að nota eitthvað annað, mamma prufaði t.d. granatepli og fannst það rosa gott.
Það er mikilvægt að bræða súkkulaðið við mjög vægan hita. Setja skál ofan á pott sem búið er að setja vatn í, súkkulaðið í skálina og leyfa þessu að bráðna hægt og rólega.