Áhugavert
30.10.2011 15:55:42 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Pepperonirúllutertubrauð



Pepperonirúllutertubrauð

 

 

1 rúllutertubrauð

1 dós sýrður rjómi

2-3 msk mæjónes

100 gr pepperoni

1 rauðlaukur

½ -1 bolli ólífur

Ítölsk kryddblanda

Salt og pipar eftir smekk

Rifinn ostur

 

1. Skerið pepperoni, lauk og ólífur smátt niður.

2. Hrærið saman við mæjónes og sýrðan rjóma.

3. Kryddið eftir smekk.

4. Smyrjið blönduna á brauðið og rúllið því varlega upp.

5. Leggið brauðið á ofnplötu sem klædd hefur verið bökunarpappír og stráið rifnum osti yfir.

6. Bakið í 20 mínútur við 180°c.


 


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.02.2011 13:47:59 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Heitt brauð í eldföstu móti


Heitt brauð í eldföstu móti

 

1 fransbrauð

250-300 gr skinka

1 dós aspas

1 dós sveppir

200 gr majones

3 eggjarauður

3 eggjahvítur þeyttar

salt og pipar

rifinn ostur

 

Smyrjið eldfast mót, takið skorpuna af fransbrauðinu og rífið það niður í botninn á mótinu. Hellið aspasnum yfir (safinn líka), hellið sveppasafanum yfir

Hrærið majonesið út með eggjarauðunum, kryddið með salti og pipar. Saxið skinkuna og blandið saman við ásamt sveppunum. Hellið blöndunni yfir brauðið. Í lokin er eggjahvítunum dreift yfir, rifnum osti stráð ofan á og bakað í 30 mín við 180-200°C.

ATH. Það má líka nota ananas í staðinn fyrir aspas og gott getur verið að nota hvítlaukssalt. Það má líka hræra eggjahvítunum saman við alla blönduna í lokin en passa að hræra ekki of mikið.

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.01.2011 20:21:35 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Heitt rúllubrauð


Heitt rúllubrauð

 

1 rúllutertubrauð

1 dós sveppaostur

½ dós aspas

250 gr skinka

2 eggjahvítur þeyttar

2 msk majones

rifinn ostur

 

Velgið sveppaostinn og þynnið með aspassafanum, kælið blönduna. Skerið skinku og aspas í bita og blandið saman við ostinn. Smyrjið blöndunni á rúllutertubrauðið og rúllið því upp, látið samskeytin snúa niður, smyrjið þeyttu eggjahvítunni yfir og bakið brauðið í 15 mín við 180°1C. Berið fram.

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

23.10.2010 12:14:46 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Heit rúllubrauðterta


Heit rúllubrauðterta

 

Efni:
1 stk rúllutertubrauð
1/2 dós vogaídýfa m/kryddblöndu
1/2 dós aspas
5-7 sneiðar smátt skorin skinka
1/4 dós ananas, smátt skorin
1 dós sveppaostur smátt skornir sveppir e smekk
Season all krydd e smekk eða annað krydd

MeðhöndlunSléttið úr rúllutertubrauðinu. Vogídýfu, sveppaosti og safa af aspas er blandað saman. Aspas, skinku, ananas og sveppum bætt út í blönduna ásamt kryddi. Öllu þessu er raðað ofan á brauðið, að sjálfsögðu er svo brauðinu rúllað aftur saman. Bakast við 225 gráður C þar til osturinn er bráðnaður og hefur fengið fallegan gullbrúnan lit.

 

Uppskrift frá Gulla


» 8 hafa sagt sína skoðun

26.01.2010 15:53:35 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Heitur brauðréttur


Heitur brauðréttur

1 dós grænn aspars
1 dós sveppir
1 dós maiskorn
Skinka (má vera kjúklingur eða eitthvað annað)
Brauð
Rjómi
Paprikuduft
Skinka er skorin niður í bita. Brauðið sett í eldfast mót. Bökuð upp sósan með soði af aspars, sveppum og mais. Krydduð með paprikudufti og smá rjóma bætt útí. Allt sett yfir brauðið og ostur settur yfir og inn í ofn, þar til það er orðið gullinbrúnt.


» 18 hafa sagt sína skoðun

01.01.2010 03:00:10 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Heitt sneiðabrauð


Heitt sneiðabrauð

1 tómatbrauð
3 harðsoðin egg, söxuð
3 msk graslaukur, saxaður
1 dós sýrður rjómi, (200 gr)
200 gr eldsnöggt skinkustrimlar
3 msk majones
Salt og pipar
2 eggjahvítur, stífþeyttar
50 gr rifinn ostur
Hitið ofninn í 200 °c. Skerið sneiðar ofan í brauð en þó þannið að botninn haldist heill. Hrærið saman egg, graslauk, sýrðan rjóma, skinku og majones og smakkið til með salti og pipar. Smyrjið fyllingunni á milli brauðsneiðanna og hyljið brauðið með eggjahvítu. Stráið rifnum osti yfir brauðið og bakið í 15-20 mín.

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.12.2009 15:17:39 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Skinkustöng


Skinkustöng

1 pakki (450 gr) smjördeig
400 gr sveppir sneiddir
2 msk olía
200 gr skinkustrimlar
200 gr rjómaostur
2 tsk milt sinnep
1 tsk dijon-sinnep
2-3 msk graslaukur, saxaður
1 egg, slegið saman
Hitið ofninn í 200°c. Fletjið deigið út þannig að úr verði 25x35 cm ferhyrningur. Steikið sveppi í 2 msk af olíu. Blandið öllu öðru saman í skál og hrærið saman ásamt sveppunum. Setjið fyllinguna í mjóar ræmur eftir endilöngu deiginu þannig að það þeki 1/3 af því. Skerið skárendur í hliðarnar á deiginu og leggið á misvíxl yfir fyllinguna þannig að flétta myndist. Penslið yfir deigið með eggi, leggið á bökunarplötu og bakið í 30-35 mín.

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.12.2009 02:05:15 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Skinkubrauð fjölskyldunnar


Skinkubrauð fjölskyldunnar

1 franskbrauð
1 dós aspars
200 gr majones
3 egg
200 gr rifinn ostur
100 gr skinka í strimlum
Takið skorpuna af brauðinu og skerið það í teninga. Hellið safanum af aspasinum yfir brauðið. Blandið majonesi og þrem eggjarauðum saman við ásamt osti, aspars og skinku. Blandið öllu þessu vel saman í skál, stífþeytið eggjahvítur og blandið þeim að endingu varlega saman við brauðblönduna. Setjið í eldfast mót og stráið dálítlum rifnum osti yfir. Bakið í um það bil 20 mín við 160°til 170° á c eða þar til osturinn er bráðinn.

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.12.2009 01:46:21 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Freising sælkerans


Freising sælkerans

Með osta og paprikublæ
6 franskbrauðsneiðar
1 camambert-ostur
2 ½ dl rjómi
6 skinkusneiðar
1 litil græn paprika og 1 rauð
Stillið bakarofninn á 175-200°c
Skerið skorpuna af brauðinu og raðið þeim í eldfast mót. Brytjið ostinn og bræðið. Hellið rjomanum saman við í smáskömmtum. Brytjið skinku og papriku frekar smátt. Hellið ostablöndunni yfir brauðið og stráið skinku og paprikubitum yfir. Bakið í heitum ofni þar til rétturinn er rétt farinn að taka lit eða í ca 15 mín.
Berið fram með rifsberjahlaupi.

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.12.2009 01:41:58 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Heitt brauð


Heitt brauð

1 dós sýrður rjómi
1 lítil dós majónes
1 askja rækjuostur
1 bréf góð skinka
1 litil dós grænn aspas
2 snittubrauð, skorin í sneiðar
Parmesanostur, rifinn
Hitið ofninn í 200°c. Hrærið saman sýrða rjómaanum, majónesi og rækjuost. Skerið skinkuna í litla bita og hellið safanum frá aspasbitunum. Blandið því næst skinku- og aspasbitunum saman við sósuna og hrærið vel. Setjið 1 msk af sósu á hverja snittubrauðssneið, stráið rifnum parmesanosti yfir og bakið í 10-12 mínútur.

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.12.2009 01:29:01 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Heitar brieostasnittur

Heitar brieostasnittur

Sætt hunangið setur punktinn yfir i-ið þegar ljúffengar brie-ostur er annars vega og hnetan smellpassar með!

½ - 1 snittubrauð
1 - 2 Dalabrie
Pekanhnetur
Fljótandi hunang
Hitið ofninn í 220°c. Skerið snittubrauðið í sneiðar og raðið þeim í ofnskúffu. Ristið þær í ofninum í nokkrar mínútur og fylgist með svo þær brenni ekki. Takið brauðsneiðarnar úr ofninum – þær mega gjarnan kólna. Leggið ostasneið ofan á hverja brauðsneið og setjið pekanhnetu ofan á. Raðið brauðsneiðunum í ofnskúffu eða eldfast mót, dreypið örlítið hunangi yfir og bakið í nokkrar mínútur eða þar til osturinn er farinn að bráðna.

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.12.2009 01:03:25 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Heitur réttur úr Sacla sósu


Heitur réttur úr Sacla sósu

brauð.
laukur
beikon kurl
sveppabox, skéra í bita
1/2 gul & 1/2 rauð skorin papríka
1 dós af Sólþurkuðum rjómaosti
2 pelar af rjóma
Sacla sósa með sólþurkuðum tómutum
Tandoori krydd

Byrja á því að setja rifið brauð í eldfastmót.
Steikja lauk, beikon & papriku og raða því því næst ofaná brauðið.
Ostinum og rjómanum er sett í pott ásamt sacla sósunni og hitað ( alls ekki sjóða).
Kryddað með Tandoori kryddinu.
Sósunni er helt yfir og sett í ofn við 200 °C í 20-30 mínútur.

Þetta er mjög fljótlegur réttur og stórsniðugur í saumaklúbbinn. Hann er vinsæll á mínu borði.
Verði ykkur að góðu :o)

Sigrún Sigmars


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.12.2009 00:57:49 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Heitur rækjuréttur


Heitur rækjuréttur

350 gr rækjur
60 gr majones
60 gr sýrður rjómi
1 tsk piparrót
75 gr sveppir í sneiðum
1 aspasdós
Bristol cream sérrí eftir smekk, rifinn ostur
Hrærið saman majonesi, sýrða rjómanum og piparrótinni. Bætið sérríi úti eftir smekk ef vill. Dreifið rækjunum í eldfast mót og setjið sveppina og aspasinn ofaná. Hellið majonesblöndunni yfir og stráið rifna ostinum yfir. Hitið í 10 mín við 200°c.
Berið fram heitt.

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.12.2009 00:48:39 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Heitur brauðréttur


Heitur brauðréttur

1 dós grænn aspars
1 dós sveppir
1 dós maiskorn
Skinka (má vera kjúklingur eða eitthvað annað)
Brauð
Rjómi
Paprikuduft
Skinka er skorin niður í bita. Brauðið sett í eldfast mót. Bökuð upp sósan með soði af aspars, sveppum og mais. Krydduð með paprikudufti og smá rjóma bætt útí. Allt sett yfir brauðið og ostur settur yfir og inn í ofn, þar til það er orðið gullinbrúnt.

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.12.2009 20:38:58 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Laxalengja


Laxalengja

Með eggjum og aspas
1 dl hrísgrjón
3 egg, harðsoðin
200 gr reyktur lax
200 gr smjördeig, tilbúið
100 gr majones
100 gr sýrður rjómi
1 tsk karrí
Pipar á hnífsoddi
Graslaukur
100 gr niðursoðinn aspas
1 egg
Sjóðið hrísgrjónin samkvæmt leiðbeiningum á pakka og kælið að mestu. Harðsjóðið eggin, kælið og saxið. Skerið laxinn í teninga eða strimla.
Hrærið saman majónes og sýrðan rjóma og kryddið með karríi, pipar og söxuðum graslauk.
Þíðið smjördeigið og fletjið það út á hveitistráðu borði (um 40x30 sm) skerið frá þrjár mjóar ræmur fyrir fléttuna, ef vill. Setjið hrísgrjónin langsum á miðjuna. Setjið söxuð eggin og laxabitana þar ofan á, síðan sósuna og loks aspasinn. Brjótið hliðar smjördeigsins yfir fyllinguna, búið til fléttu út smjördeigsræmunum og leggið ofan á. Penslið með eggi.
Bakið æi 200°c heitum ofni í 20-25 mínútur.

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Heimsóknir
Í dag:  325  Alls: 556733
Klukkan