Áhugavert
17.08.2011 00:47:54 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Grænkálsjafningur



Grænkálsjafningur


Hráefni: 

1 búnt grænkál (6 leggir)

100 gr smjör eða olía

50 gr hveiti

4 dl mjólk

kryddað með salti og pipar og sykrað eftir smekk (fyrir þá sem mega við því að verða sætari).

 

Aðferð: 

Grænkálið er gufusoðið í 4 mínútur og grófustu leggirnir fjarlægðir, vatnið er látið síga vel af og kálið saxað niður eða hakkað. Smjörið er brætt og gert að þykkni með því að bæta hveitinu rólega saman við. Síðan er mjólkinni bætt við í smá skömmtum og suðan látin koma upp á milli til að forðast kekki. Þá er kryddað og soðið í 4 mín, að lokum er grænkálinu bætt útí og soðið áfram í 2 mín. Ef notað er fryst grænkál er tilvalið að láta það þiðna í jafningnum. Þessi jafningur er góður með öllum mat.


Birt með fullu leyfi Eygló hjá Móður Jörð


» 14 hafa sagt sína skoðun

14.08.2011 23:28:38 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Fylltar paprikur



Fylltar paprikur


Hráefni:

60.0 g smjör

1.0 laukur

1.0 Hvítlauksrif

300.0 g hveiti

250.0 ml mjólk

300.0 gr túnfiskur í olíu

1.0 msk Fersk steinselja

85.0 g hveiti

2.0 egg

1.0 tsk paprikuduft

60.0 g brauðrasp

0.0 olía

 

Leiðbeiningar: 

 

Hitið grillið. Skerið paprikurnar í fernt. Grillið og hýðishliðin á að snúa upp þar til hún dökknar og blöðrur myndast. Setjið í plastpoka, kælið og fjarlægið svo hýðið. Hitið smjör í potti og steikið laukinn í örstutta stund þar til hann er gullinn, bætið þá við hvítlauk og gyllið hann. Bætið svo við hveitinu og hrærið þar til blandan byrjar að taka lit. Takið af hitanum og bætið út í mjólk og jafnið út. Aftur sett á hitann og hrært túnfiski, steinselju og salti saman við. Hyljið og látið kólna.Setjið ca eina msk. af fyllingunni á enda hvers paprikuhluta Rúllið upp og festið með tannstöngli. Setjið aukahveitið á grunnan disk og blandið saman paprika og brauðraspi á öðrum diski. Veltið paprikunum uppúr hveitinu, svo eggjunum og svo raspinu. Djúpsteikið í 2 mínútur eða þar til þær verða fallega gylltar.


Uppskrift frá Nóatúni...


 


» 13 hafa sagt sína skoðun

12.08.2011 02:49:53 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Kryddað hvítkálssalat



Kryddað hvítkálssalat


Hráefni: 

225 gr hvítkál, rifið frekar fínt

1 rauður chilipipar, steinhreinsaður

25 gr ferskur kóriander

25 gr þurrristaðir heslihnetukjarnar

1 msk rifið sítrónuhýði

1 tsk rifin engifer­rót

1 tsk tamarinsósa,

2 msk ristuð sesamfræ,

safi úr 1/2 sítrónu

smá salt 

cayennepipar fyrir þá sem vilja.  

Öllu blandað saman í skál og tilbúið  - bingó !


Birt með fullu leyfi Eygló hjá Móður Jörð


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.08.2011 12:58:10 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Rófu- og kartöflusalat



Rófu- og kartöflusalat


Hráefni:

1/2 kg kartöflur

1/2 kg rófur

50 gr möndlur

þurrristaðar á pönnu

50 gr grænar ólífur

10 sólþurrkaðir tómatar í strimlum

1 msk kapers

1/2 búnt fersk steinselja

1 1/2 dl ab-mjólk

1 msk sinnep

1 tsk karrý

salt og cayennepipar eftir smekk

 

Aðferð:

- kartöflurnar eru skornar í passlega munnbita og bakaðar í ofni við 200 °C í ca 35-40 mín, 

- kryddaðar með smá karrýi og salti

- rófurnar eru skornar í þunna þríhyrninga” og settar út í sjóðandi vatn í ca 3 mín, þá eru þær settar í sigti og kældar

- kartöflur, rófur, möndlur, ólífur, sólþurrkaðir tómatar og kapers, sett í skál 

- ab-mjólkinnni er hellt í skál og krydduð með sinnepi, karrýi, salti og cayennepipar 

- þessu er síðan hellt yfir salatið og blandað vel  saman við - tilbúið.


Birt með fullu leyfi Eygló hjá Móður Jörð


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.08.2011 12:57:19 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Byggsalat


Byggsalat


Hráefni:

3 1/2 bolli soðið Bankabygg

4-5 gulrætur gróft rifnar

1/3 bolli rúsínur

1/3 bolli ristuð sólblómafræ

1/4-1/3 bolli ólífuolía

3 msk sítrónusafi

1 bolli ferskt dill eða 3-4 msk þurrkuð dillfræ

sjávarsalt og svartur pipar

 

Aðferð:

Blandið  byggi, gulrótum, rúsínum og fræum saman. Gerið sósu úr sítrónusafa, olíu og dilli og blandið vel saman í matvinnsluvél eða krukku með loki. Látið bíða í smá stund og hellið síðan yfir kornið. Saltið og piprið eftir smekk.


Birt með fullu leyfi Eygló hjá Móður Jörð


» 14 hafa sagt sína skoðun

09.08.2011 12:57:04 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Spírað bygg með grænmeti og heitu kryddi



Spírað bygg með grænmeti og heitu kryddi  


Hráefni:

1 bolli ferskir sveppir, saxaðir

3 bollar rifið grænmeti t.d. rófur, zukini, kúr­bítur og  gulrætur

1 bolli spírað bygg

2 tómatar fínt saxaðir

1/4 bolli söxuð steinselja

 

Sósa:

1-2 rif pressaður hvítlaukur

1/2 bolli sítrónusafi

2/3 bolli ólífuolía

1 tsk mísó

1 tsk létt hnetusmjör

2 tsk salt sjávar

1 tsk vel saxður jalapenopipar

svartur pipar

Hristið sósuna fyrst vel saman í krukku eða matvinnsluvél, hrærið síðan öllu kröftuglega saman í skál og sveiflið á borðið.


Birt með fullu leyfi Eygló hjá Móður Jörð


» 12 hafa sagt sína skoðun

07.07.2011 21:14:07 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Grænt gulrótasalat



Grænt gulrótasalat


Hráefni: 

200 gr gulrætur

150 gr (2-3 leggir) grænkál, skorið í fína strimla og léttkreist með fingrunum

50 gr þurrristaðar pecanhnetur

4 msk þurrristuð sesamfræ, 

4 msk ólífuolía

2 msk sítrónusafi

smá tamari og hvítlaukur fyrir þá sem vilja

 

Aðferð:

- gulræturnar eru skornar í þunnar "eldspýtur” eða rifnar gróft á rifjárni og settar í skál ásamt grænkálinu og pecanhnetunum

- sítrónusafa, olíu, sesamfræum, tamari og hvítlauk er blandað saman og hellt yfir.


Birt með fullu leyfi Eygló hjá Móður Jörð


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.07.2011 21:13:37 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Grænkálspönnsur



Grænkálspönnsur

Hráefni:

6 dl sojamjólk eða mjólk

2 egg

2 dl spelt eða heilhveiti

2 dl byggmjöl

1 1/2 tsk salt

2 msk ólífuolía

4-5 grænkálsblöð

 

Aðferð:

- grænkálið er tekið af stilknum og saxað fínt, síðan er það sett út í sjóðandi vatn og    soðið í ca 5 mín, þá er það kælt og vatnið látið renna af því í sigti- nú er allt þeytt saman í pönnukökudeig og látið bíða í ca 1/2 klst og jafna sig

- pönnukökurnar eru bakaðar á venjulegan hátt

- gott er að nota þær sem matarpönnukökur eða bara.   


Birt með fullu leyfi Eygló frá Móður Jörð


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.07.2011 21:13:19 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Bygg- rófu- og grænkálssúpa



Bygg- rófu- og grænkálssúpa


Hráefni: 

1 búnt grænkál (3-400 gr)

1 dl Bankabygg

1 væn rófa

4 gulrætur

1 græn­metis­teningur

2 l vatn eða soð

jurtasalt og krydd eftir smekk.

 

Aðferð:

Fyrst er Bankabyggið soðið í u.þ.b. 35 mín, þá er smátt skornu grænmet­inu bætt í pottinn, síðan kryddað og soðið í 10-15 mín í viðbót.


Birt með fullu leyfi Eygló hjá Móður Jörð


» 13 hafa sagt sína skoðun

20.06.2011 21:49:42 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Byggbrauð / byggbollur með geri.


Byggbrauð / byggbollur með geri.


Hráefni:

1 dl byggmjöl

1 dl soðið Bankabygg

3 dl hveiti

1 dl heilhveiti

1/2 dl hveiti­klíð

3 tsk þurrger

3 dl volg undanrenna

1 msk matarolía

1 msk sól­blómafræ

1 msk sesam­fræ

1 msk hörfræ

1 dl fjalla­grös

1/2 dl rúsínur

 

Aðferð:Blandið saman þurrefnum ásamt þurrgeri (takið frá 1/2 -1 dl af hveiti til að hræra upp í deigið á eftir). Hellið olíu og undanrennu út í þurrefnin og hrærið vel með sleif (deigið má vera blautt). Stráið hveiti undir og yfir deigið og látið það lyfta sér á hlýjum stað í hálftíma. Hnoðið afgangshveitinu saman við ef þarf. Mótið lengju úr deig­inu og skiptið henni í 10-12 jafnstóra bita. Mótið bollur úr bitunum og raðið á bök­unarplötu. Látið deigið hefast á hlýjum stað í 15-20 mín. Penslið bollurnar með vatni eða mjólk. 

 

Bakið í miðjum ofni við 200 C í 15 mín. (brauð í 45 mín.). Ath. ef notað er perluger er það leyst upp í 1 1/2 dl af volgu vatni í 5-10 mín og 1 1/2 dl af mjólk er síðan blandað saman við.


Birt með fullu leyfi Eygló frá Móður Jörð


» 24 hafa sagt sína skoðun

17.06.2011 11:56:17 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Gratinerað grænmeti



Gratinerað grænmeti

 

1 góður blómkálshaus

500 gr broccolí


1 góður púrrulaukur


1 rauð paprika


500 gr forsoðnar gulrætur


50 gr smjör


rifinn ostur

 

Grænmetið er þvegið og snyrt, skorið í hæfilega bita og raðað í eldfast mót, smjör og ostur sett yfir og gratinerað í ofni við 180-200°C.


 


» 8 hafa sagt sína skoðun

02.06.2011 01:53:27 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Byggte



Byggte


Hráefni:

1 dl Bankabygg

1 msk sítrónubörkur (af lífrænt ræktaðri sítrónu)

1 kanelstöng 

 

Aðferð:

Þetta er soðið saman í ca 1 l af vatni í minnst 15 mín.

Gott er að kæla þetta te með eplasafa. Byggið og börkinn má síðan nota í brauð eða matar­gerð. 

Til tilbreytingar er gott að setja smá bita af ferskum engifer útí.  


Birt með fullu leyfi Eygló hjá Móður Jörð


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.05.2011 10:55:23 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Indverskt Naan-brauð úr byggmjöli



Indverskt Naan-brauð úr byggmjöli


Hráefni:

200 gr byggmjöl

250 gr hveiti

1 dós hrein jógúrt

1 msk hrásykur

1/2 msk salt

2 msk sesamfræ og 50 gr þurrger (eða 5 tsk lyftiduft, t.d. vínsteins­lyftidyft sem fæst í heilsubúðum)

 

Aðferð:

Leysið þurrgerið upp í 1 dl af vatni. Hrærið öllu hráefninu saman. Hnoðið deigið og rúllið því í lengju og skerið í 2 cm þykkar sneiðar. Fletjið í 1/2 cm þykkar sneiðar og steikið á pönnu eins og klatta. Berið fram með íslensku smjöri.


Birt með fullu leyfi Eygló frá Móður Jörð


» 18 hafa sagt sína skoðun

28.05.2011 10:54:33 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Sykursöltuð bleikja á tvo vegu með lífrænu


Sykursöltuð bleikja á tvo vegu með lífrænu

 bankabyggi, blómkáli, pönnusteiktum humarhala,

 humarsósu og kryddjurtar-jógúrtsósu

 

Uppskriftin sem færði íslenska

kokkalandsliðinu gull á HM 2010

Forréttur fyrir 4

 

 

Sykursöltuð bleikja

1 Flak bleikja

50 gr Púðusykur

50 gr Sjávarsalt

Bleikjuflakið er hreinsað og roðrifið, púðusykri og salti er blandað og flakið grafið í blöndunni í 40 mín. Grafninginn er skoluð af flakinu, flakið er skorið í helming eftir endilöngu og það lagt saman og rúllað þétt í plastfilmu. Rúllan er elduð í lággufuofni í 23 mín við 42°c (einnig hægt að elda í vatni við sama hitastig).

Bleikju “tartar”

50 gr sykursöltuð bleikja

50 gr blómkál

4 greinar Dill

20 gr Kapers

30 ml reykt repjuolía

1 stk shallotlaukur

1 msk sítrónusafi

Smá salt

Bleikjan er skorin í litla bita, blómkálið er rifið fínt á rifjárni og blandað saman við bleikjuna. Dill, kapers og reykta olían er maukað saman í matvinnsluvél og blandað saman við bleikjuna. Að lokum er laukurinn fínt saxaður og honum blandað saman við og tartarinn smakkaður til með sítrónusafanum og saltinu.

Blómkálstoppar 

60 gr blómkálstoppar

1 msk repjuolía

1 tsp. Sherry edik

1 stk graslaukur

Blómkálstopparnir er snyrtir og bakaðir létt með olíunni og salti, þegar topparnir eru mjúkir viðkomu þá er þeir kældir og kryddaðir með edikinu og fínt söxuðum graslauk.

Blómkálsmauk

30 gr blómkál

20 ml rjómi

20 ml mjólk

1 msk brúnað smjör

Salt

Blómkálið er soðið í rjómanum og mjólkinni þar til það er orðið mjúkt þá er það maukað í matvinsluvél og smakkað til með smjörinu og saltinu

Bankabygg

60 gr Bankabygg

150 ml kjúklinga soð

40 gr Agúrka

40 gr Græn epli

4 tsb Sýrður rjómi

2 gr fínt rifinn piparrót

3 greinar saxað dill

1 stk saxaður shallotlaukur

1 tsk Sherry edik

1 tsk sítrónusafi

Bankabyggið er soðið við vægan hita í 30 mín og það síðan kælt. Agúrkan og eplið er skrælt, hreinsað og skorið í litla teninga. Þegar bankabyggið er orðið kalt er agúrkuni, eplunum, dillinu,shallotlauknum og sýrðarjómanum blandað saman við og það síðan kryddað til með piparrótinni, sherry edikinu og sítrónusafanum.

Kryddjurtar jógúrt dressing

25 gr Grískt jógúrt

10 gr Spínat

4 greinar steinselja

1 tsk Sherry edik

1 tsk sítrónuisafi

1 tsk rifinn sítrónubörkur

Spínatið og steinseljan er blanseruð í sjóðandi vatni í 10 sek. Og það síðan snögg kælt í klakavatni. Jógúrtin, spínatið og steinseljan er maukað saman í matvinsluvél og síðan kryddað með sherryedikinu, sítrónunni og saltinu. Dressinginn er að lokum sígtuð í gegnum fínt sigti.

Humarsósa

1 stk shallotlaukur

100 ml hvítvín

4 stk skel af humrinum

1 L humarsoð

20 ml rjómi

1 msk smjör

Salt

2 msk sítrónusafi

1 stk hvítlauksgeiri

Laukurinn, hvítlaukurinn og humarskelin er er brúnaður í potti, hvítvíninu er bætt út í potinn og það soðið niður um helming, þá er humarsoðinu bætt í potinn og það soðið niður við vægan hita í 1 klst. Sósan er sigtuð og sett eftur í potinn ásamt rjómanum og soðinn í 20 mín til viðbótar. Að lokum er smjörinu þeitt saman við sósuna með töfrasprota og sósan smökkuð til með sítrónusafanum og salti.

Pönnusteiktir humarhalar

4 stk humarhalar

Olía til steikingar

1 tsk hvítlauksolía

salt

Humarinn er pillaður úr skelinni og hann steiktur í olíunni. Humarinn er síðan kryddaður með hvítlauksolíunni og salti.

Kryddjurtarsalat

2 greinar Dill

2 stk graslaukur

2 greinar kerfill

4 stk Afilla baunaspírur

repjuolía

Salt

Kryddjurtinar skolaðar og pillaðar frá stilknum, að undanskildnum graslauknum sem er fínt saxaður. Kryddjurtunum er blandað saman og þær kryddaðar meðsalti og smá olíu.

Söl duft

20 gr íslensk söl

Sölin eru þurkuð í ofni í 30 mín við 150°c og þær síðan muldar í kaffikvörn

Þurrkað rúgbrauð

20 gr rúgbrauð

repjuolía

Salt

Rúgbrauðið er rifið fínt í rifjárni og það blandað með smá olíu og salti. Brauðið er þurkað í ofni í 15 mín við 150°c.

Þegar undirbúningnum er lokið er bleikjunni skipt í fjóra jafn stóra skamta, bygginu er þjappað í ferning sem skiptir disknum nokkurnveginn í tvent og bleikjan lögð ofan á byggið. Bleikjutartarnum er þjappað í form hægra meginn við byggið og blómkálstoppurinn setur ofan á tartarinn. Fyrir framan tartarinn kemur lítill vöndur af kryddsalati ásamt dressingunni og top af blómkálsmaukinu. Vinstrameginn við byggið kemursvo humarinn og humarsósan sem er þeitt með töfrasprota þar til hún freiðir fallega. Að lokum er þurkaða rúgbrauðinu stráð yfir bleikjuna ogsölduftinu stráð yfir kryddsalatið og blómkálsmaukið.


Birt með fullu leyfi Eygló frá Móður Jörð


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.05.2011 10:54:13 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Byggborgarar



Byggborgarar


Hráefni.

1 dl Bankabygg

1 dl hýðishrísgrjón

1 meðalstór smátt saxaður laukur

1 1/2 dl maukaðar soðnar kartöflur

1 dl rifinn sojaostur

salt

cayennepipar á hnífsoddi

2 tsk grísk kryddblanda frá Pottagöldrum

1 egg til að velta uppúr (má sleppa)

 

Aðferð:

- byggið og hrísgrjónin eru soðin sitt í hvoru lagi

- soðnu korninu og restinni af uppskriftinni er blandað vel saman

- síðan eru mótuð meðalstór buff - frekar flöt

- buffin er brúnuð upp úr ólífuolíu á pönnunni þar til þau eru gyllt

- gott er að setja borgarana í  "heilsuhamborgarabrauð“ ásamt góðri kaldri sósu og tilheyrandi grænmeti.


Birt með fullu leyfi Eygló hjá Móður Jörð


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Heimsóknir
Í dag:  39  Alls: 556447
Klukkan