|
|
30.10.2011 16:29:15 / Saelkeraklubbur-Ingunnar
Örbylgju-kartöfluflögur
Skera kartöflurnar í þunnar sneiðar og raða í einu lagi á disk eða gufukörfu. Elda í 3 mínútur í einu og snúa þeim á milli. Lækka kraftinn í hvert skipti sem þeim er snúið og BINGÓ. Flögurnar verða svolítið krypplaðar en brakandi ferskar. Þykkari sneiðar verða svolítið mjúkar í miðjunni og þunnar eiga það til að vera stökkar. Smá tilraunastarfsemi mun á endanum leiða til snilldarflaga sem hægt er að nota til að skófla upp ídýfu. Mikilvægt er að fylgjast vel með kartöflunum því ferlið frá því að vera fullkomlega eldaðar yfir í að vera brenndar er stutt. Takið eftir að það er engin olía eða önnur óholl efni í þessum heimagerðu kartöfluflögum. Kryddin í kryddskúffunni og ólífuolían gera „kartöfluflögurnar mínar“ að besta mat í heimi. Uppskrift fengin á Matarkörfunni.is
»
30.10.2011 16:26:02 / Saelkeraklubbur-Ingunnar
Sælkerasnarl með sjónvarpinu
Maccarónur og ostur (fyrir 4) 400 gr makkarónur væn klípa af smjöri 1 msk.ólífuolía salt og nýmalaður pipar 100 gr beikon 1 saxaður laukur 200 ml sýrður rjómi 4 eggjarauður handfylli söxuð steinselja og fáfnisgras 100 gr parmesan-ostur 100 gr rifinn Grettir sterki 100 gr gráðostur Hitið ofninn í 19-80°c. Sjóðið makkarónur í söltu vatni samkvæmt leiðbeiningum. Skolið með köldu vatni og geymið. Bræðið smjör með ólífuolíu á pönnu. Steikið beikonið og lauk á millihita þar til losnar um fitu beikonsins og það brúnast. Piprið og saltið. Takið af hellunni, hrærið saman sýrðum rjóma, eggjarauðum, kryddjurtum, helmingnum af parmesan-ostinum og Grettirsterka. Myljið gráðost og blandið öllu saman við makkarónurnar. Setjið í eldfast mót og stráið afgangi af parmesan-osti ofan á. Bakið í 20 mínútur eða þar til rétturinn er heitur í gegn, með gullnum toppi. Látið stenda í 5 mínútur áður en borið er fram. Borðið með grænu salati. Uppskrift úr Fréttablaðinu
»
30.10.2011 16:20:07 / Saelkeraklubbur-Ingunnar
Píta með saltfisk a la carte Ingunn
Pítubrauð Saltfiskur (afgangu ef til er, má líka nota annan fisk) Tómatur Gúrka Paprika Rauðlaukur Sætar karföflur (afgangur ef til er) Fetaostur Pítusósa eftir smekk Hitið pítubrauðin, skerið niður allt grænmetið. Fyllið pítubrauðið með grænmetinu, fiskinum og kartöflunum og setjið pítusósu eftir smekk. Verði ykkur að góðu 
»
30.10.2011 15:55:42 / Saelkeraklubbur-Ingunnar
Pepperonirúllutertubrauð
1 rúllutertubrauð 1 dós sýrður rjómi 2-3 msk mæjónes 100 gr pepperoni 1 rauðlaukur ½ -1 bolli ólífur Ítölsk kryddblanda Salt og pipar eftir smekk Rifinn ostur
1. Skerið pepperoni, lauk og ólífur smátt niður. 2. Hrærið saman við mæjónes og sýrðan rjóma. 3. Kryddið eftir smekk. 4. Smyrjið blönduna á brauðið og rúllið því varlega upp. 5. Leggið brauðið á ofnplötu sem klædd hefur verið bökunarpappír og stráið rifnum osti yfir. 6. Bakið í 20 mínútur við 180°c.
»
16.05.2011 15:04:32 / Saelkeraklubbur-Ingunnar
Partýlistinn Niðurskorið grænmeti með sýrðum rjóma (með bragði) til að dýfa ofaní.
Baka frekar þunna brownies og skera í munnbitastærð, dasha svo sigtuðum
flórsykri aðeins yfir til skreytingar.
pinnar úr tortillakökum og salsa.
í matvinnsluvél: Litlar kjötbollur, súrsæta sósu / chilisósu í skál við hliðina.
Kokkteilpylsur / pylsubitar vafðir með beikoni og bakaðir í ofni.
Döðlur fylltar með gráðosti.
Ostapinnar – skerðið ost í tenginga setur vínber / mandarínu / papriku /
ananas / minitómata ofan á.

Snittubrauð skorin í sneiðar, setja í ofnskúffu og rista aðeins, taka út og setja
sneið af Gullosti ofan á, svo smá sneið af parmaskinku og aftur í ofninn þar
til osturinn bráðnar. Þetta er hægt að gera í miklu magni.
Vanillubollur fást frosnar í Bónus, hægt að dýfa þeim í súkkulaði og kæla.
Jarðaber sömuleiðis.
Kex og ostasalat.
Ferskir niðurskornir ávextir
Kjúklingalundir á spjóti og köld sósa með
Döðlur vafðar með beikoni og tannstöngull í gegn, bakað í ofni.
Litlar pönnurkökur með reyktum laxi og piparrótarsósu
Mini-tartalettur með graflaxi og graflaxssósu eða t.d. einhverju heitu gumsi
eins og campells kjúlla útfærsla fyrir tartalettur.
Litlar tortillavefjur með kjúkling, kóríander og hnetusósu (eða einhverju bara)
Ávaxta fondue
Alls konar bruchettur með ýmislegu áleggi - fullt af hugmyndum í brauðréttabók Hagkaups.
1 rauð og 1 græn paprika, 10 cm af púrrulauk eða 3 vorlaukar, smá biti af ferskum chili (ég bætti því við,en var ekki í upphaflegri uppskrift)
held ég hafi notað ca 3 cm af ávextinum)
saxað frekar smátt í matvinnsluvél og sett í sigti og látið renna mesta vökvann
af, (óþarfi samt að vinda þetta alveg samt) þessu er blandað saman við stofuheitan rjómaost, heila 400gramma öskju.
smurt á trotillakökur, (mitt dugði á 2 pakka af minni gerðinni, held það hafi
verið 6 í pakka, semsagt gerir 2 "brauðtertur" úr þessu.
þrýstir vel saman og geymir í kæli í nokkra tíma (ég geymdi það yfir nott) þá
storknar rjómaosturinn vel og auðvelt er að skera í litla bita.
svo er þetta skorið niður í munnbitastærð og tannstönglum stungið í hvern pita.
borið fram með salsasósu í skál við hliðina, fólk dýfir sjálft í hana, og jafnvel
guacamole eða sýrðum, ég var bara með salsa og þetta var mjög vinsælt og
kláraðist upp til agna.

Portúgalskar saltfiskbollur – hafa þær litlar fyrir pinnamat
Portúgal 350 g saltfiskur, afvatnaður 400 g kartöflur, mjölmiklar (bökunarkartöflur) 1 laukur, saxaður smátt
2-3 msk steinselja, söxuð
3 egg
olía til steikingar
Saltfiskurinn soðinn, roð- og beinhreinsaður, losaður sundur í flögur og síðan
stappaður með gaffli. Kartöflurnar soðnar, afhýddar og stappaðar. Fiskinum
blandað saman við ásamt lauk og steinselju og síðan er eggjunum hrært
saman við, einu í senn. Farsið á að vera frekar þykkt en ef það er of þurrt má bleyta í því með svolítilli mjólk. Látið kólna alveg. Olía hituð (annaðhvort
um 5 cm djúp, ef djúpsteikja á bollurnar, eða aðeins nokkrar matskeiðar, ef á
að pönnusteikja þær). Bollur mótaðar úr farsinu með tveimur matskeiðum og
steiktar þar til þær eru gullinbrúnar; snúið nokkrum sinnum, hvort sem þær
eru djúp- eða grunnsteiktar. Teknar upp og látið renna af þeim á
eldhúspappír.
Bornar fram heitar eða kaldar, t.d. með kryddjurtabættri tómatsósu og salati og/eða soðnum hrísgrjónum. Og gjarna ólífum.
Saltfiskbollur með rósmarín-majónesi
Hráefni
400 g saltfiskur, útvatnaður
300 g kartöflur
1 stk. stór laukur
1 stk. hvítlauksgeiri
1 tsk. rósmarín
10 stk. svartar ólífur
1 tsk. maukað chili
1 tsk. olía
200 g japanskt brauðrasp (panko) 2 stk. vorlaukar
pipar
Aðferð
Setjið vatn í pott. Skerið kartöflurnar í bita og sjóðið. Bætið saltfiskinum í
bitum út í eftir um 10 mín. Afhýðið hvítlauk og lauk og maukið mjög vel í
matvinnsluvél ásamt rósmaríni, ólífum, chili og 1 tsk. af olíu. Sjóðið
kartöflurnar og saltfiskinn saman í 10 mín. Færið upp úr pottinum og blandið
saman við maukið. Kælið og bætið panko raspi saman við og mótið litlar
bollur. Djúpsteikið bollurnar í olíu og berið fram með rósmarín-majónesi
sem gott er að dýfa bollunum í.
Meðlæti
Rósmarín-majónes
Hráefni
1 kvistur rósmarín 1/2 stk. sítróna, safinn 5 msk. Majónes
Saxið rósmarínkvistinn. Kreistið safann úr sítrónunni út í majónesið og hrærið
rósmaríni saman við.

Tortillasnittur
3 öskjur af 125gr hreinum rjómaosti rauð paprika skinka blaðlaukur
saxar paprikuna, skinkuna og laukinn niður í litla bita (magnið hver bara eftir
smekk hvers og eins) og hrærir saman við rjómostinn. Þetta smurt í þunnu lagi á tortillapönnukökur, þeim rúllað upp og skerð í bita.
Þetta dugir á ca 12 stórar tortillakökur.
Sterkar rúllur
250 gr rjómaostur
75 gr góð skinka, söxuð
2 msk niðursoðin jalapeno pipar saxaður eða bara chilli pipar (má sleppa,
þá “endast” snitturnar lengur)
2 saxaðir rauðlaukar (einnig hægt að nota vorlauk) 1/2 rauð paprika söxuð smátt
6-8 hveititortillur
allt nema tortillurnar (auðvitað) sett í matvinnsluvél og mixað saman. Þunnu
lagi smurt á tortillakökurnar, skorið í bita.
Tortillu - pinnar
250 gr rjómaostur mjúkur
75 gr.´góð skinka
2 msk. niðursoðinn jalapenjosmátt saxaður
2 vorlaukar (ég notaði púrru)smátt saxaður
1/2 rauð paprika söxuð smátt
6 tortillakökur
Hrærið þetta bara allt saman, setjið svo inn í tortilla kökurnar (ekkert of mikið
en samt soldið), rúllað upp og skorið í litla bita. Tannstöngul ofan í hverja og
eina.
Vatnshnetur með beikoni
2½ dl tómatsósa 1¼ dl sykur
Vatnshnetur í dós (Water Chestnut´s)
Beikon
Skerið beikonið í passlega strimla, vefjið því utan um hneturnar og stingið
tannstöngli í til að beikonið tolli. Raðið hnetunum í elfast mót. Blandið
saman tómatsósunni og sykrinum, hellið yfir hneturnar og bakið í miðjum
ofni við 200°C í 20-30 mín
Nacho – með lauk og sveppum
1 dós rjómaostur 1 krukka Salsa sósa (hot) 1 rauðlaukur 1/2 -1 paprika ferskir sveppir
c.a 2 tómatar púrrulaukur iceberg salat (frekar lítið)
Byrjar á því að skera rauðlaukinn mjög smátt og setja hann í botn á eldföstu
mót, svo hrærir þú saman rjómaostinn og salsasósuna í hrærivél (hrærir
þangað til þetta er svolítið stíft og þykkt)
setur það svo ofan á rauðlaukinn, svo skerðu bara allt grænmetir mjög smátt
niður og dreifir því ofan á jukkið. Þetta er borðað kalt með Nachos flögum (sósa á flögurnar).
Laxa-kavíarpaté á ristuðu brauði
300 g reyktur lax 125 g brætt smjör 2 lítil box sýrður rjómi 2-3 blöð matarlím hvítur pipar
100 g rauður kavíar
Setjið laxinn í mixara ásamt brædda smjörinu og sýrða rjómanum. Bleytið
matarlímið í vatni og leysið upp í sjóðandi vatni (2 msk). Blandið saman við
laxafarsið kryddið með pipar. Blandið kavíar saman við. Setjið í ísskápinn
(má setja síðan í frysti). Sprautið maukinu á ristað brauð sem skorið hefur
verið í hæfilega litla þríhyrninga.
Innbakaðar ólífur
1 krukka svartar ólífur 150 g hveiti 100 g smjör
125 g Maribóostur cayennepipar á hnífsoddi 1 sundurslegið egg
Myljið smjörið saman við hveitið og hnoðið rifnum ostinum og piparnum
saman við. Fletjið degið út og stingið u.þ.b. 4 sm kringlóttar kökur út. Pakkið
ólífunum inn, penslið með egginu og bakið við 200°C í u.þ.b. 20 mín.
Kalkúnasnitta
Ítalskt brauð (snittubrauð) Sólþurrkaðir tómatar, mauk Salat
Kalkúnaálegg Brieostur Laukur
Skerið tómatana, fjarlægið kjarnann og saxið smátt niður. Saxið niður
basilíkuna og blandið henni saman við tómatana, dreifið örlitlu af ólífuolíu á
brauðsneiðarnar og setjið smá mozzarellaost yfir. Grillið í ofni þar til osturinn
er byrjaður að bráðna.
Smjördeigssnúðar með sesamfræjum
2 plötur frosið smjördeig
6 skinkusneiðar
1 ½ bolli rifinn ostur
dijon sinnep
sesamfræ egg
Saxið skinkuna fremur smátt. Fletjið út smjördeigið, smyrjið dijon sinnepi á
degið og dreifið skinkunni og ostinum yfir. Rúllið deginu upp og skerið í litla
snúða. Pískið eggið og penslið snúðana. Stráið dálítið vel af sesamfræjum
yfir og bakið við 200°C í u.þ.b. 15 mín.

Egg sem pinnamatur!
Harðsjóðið egg, takið skrunina af og skerið í tvennt eftir endilöngu. - Miðið
við eitt egg á mann eða tvo helminga.
Fyllingar!
Takið eggjarauðuna úr og setjið í matvinnsluvél eða blandara og blandið með
eftirfarandi efnum og sprautið maukinu svo aftur í hvítuna þar sem rauðan
var áður.
Miðað er við að búið sé til úr 4 eggjum í einu, sem sagt 4 rauður, 8
helmingar.
1. Setjið saman við rauðurnar: 1 tsk. sætt sinnep, 2 msk. sweet relice og
örlítið af mayones.
2. Setjið saman við rauðurnar: 1 tsk. saxaðan lauk, 4 msk. kurlaðan túnfisk
og örlítið af mayones.
3. Setjið sama við rauðurnar : 1 tsk. Paprikuduft.1 msk. saxaðan rauðlauk og
örlítið af mayonese.
4. Setjið saman við rauðurnar: ½ tsk. Karry, 3 saxaða síldarbita og örlÍtið af
mayonesi.
5. Setjið saman við rauðurnar: örlítið af aromakryddi, 4 msk. saxaðar rækjur
og örlítið af mayonesi.
6. Setjið saman við rauðurnar: saxaðan grænan aspas og örlítið af mayones.
7. Setjið saman við rauðurnar: saxaða sveppi og örlítið af mayonesi.
8. Setjið saman við rauðurnar: saxaða skinku og örlítið af mayonesi.
9. Setjið saman við rauðurnar: 2 msk. kavíar úr túbu og örlítið mayones.
10. Setjið saman við rauðuna: 2 msk. af söxuðu pepperoni eða spægipylsu, 1
tsk. af rauðlauk og örlítið af mayonesi.
Munið að þetta magn er gefið upp fyrir fjóra , 4 egg , 8 helmingar, tveir á
mann og er hver fylling í 4 egg.

Fylltir gúrkubitar með hvítlaukskotasælu
1 gúrka
1 dós kotasæla (lítil)
1 hvítlauksrif, pressað
1 msk ristuð sesamfræ
Kljúfið gúrkuna eftir endilöngu & greypið kjarnann innan úr með skeið.
Blandið saman kotasælunni & hvítlauknum. Fyllið gúrkuhelmingana með blöndunni.
Skerið í bita & stráið ristuðum sesamfræjum yfir.
Gúrkustafir með Hoisinsósu
Gúrka skorin í stafi
Hoisin-sósa:
½ Hoisin-mauk (tilbúin kínversk kryddsósa)
¼ dl sesamolía
½ dl sykur
½ dl japönsk sojasósa (t.d. Tamari) 2 msk sesamfræ
Blandið sósuna & berið fram í skál & raðið gúrkunum á disk í kringum
skálina. Minnir dáldið á sushi (án þess að vera það)
»
26.04.2011 12:45:59 / Saelkeraklubbur-Ingunnar
Blaðlauksbaka
Deig: 150 gr heilhveiti 75 gr smjör 1 tsk olía 1-2 msk kalt vatn Fylling: 200 gr blaðlaukur 2 dl grænmetissoð 200 gr kotasæla 3 egg 100 gr rifinn ostur 35 gr valhnetukjarnar saxaðir ½ tsk paprika ½ tsk sellerísalt ½ tsk hvítur pipar Hnoðið deigið í matvinnsluvél og geymið í ísskáp á meðan fyllingin er löguð. Skerið blaðlaukinn í 1-1 ½ cm bita og mýkið í sjóðandi grænmetissoði í 2-3 mín Takið upp úr soðinu og látið leka af lauknum. Hrærið vel saman kotasælu, eggi og rifnum osti, blandið varlega saman við soðna blaðlauknum og valhnetukjörnum, kryddið með papriku, sellerísalti og pipar. Smyrjið eldfast mót og fletjið deigið út um 3 mm þykkt og setjið í mótið, hellið fyllingunni yfir og bakið við 220°C í 25-30 mín.
»
12.02.2011 11:29:28 / Saelkeraklubbur-Ingunnar
500 gr Nautahakk
1/2 Ritz kex pakki 1 pk púrrulauks súpa 1 egg Aðferð: Öllu blandað saman í skál og passið ykkur að mylja ritzkexið vel ...gott að gera það með því að setja það í poka og mylja) Svo er búið til pínu litlar bollur og steikt á pönnu... Ef það er verið að undirbúa veislu þá er allt í lagi að gera þetta með einhverjum vikum fyrirvara og setja bara í frysti... Sósa 1 Heins Chilli sósa 1/2 sólberja sulta 1/2 rifsberjahlap þetta er rétt hitað saman Verði ykkur að góðu Sigrún
»
30.01.2011 23:20:31 / Saelkeraklubbur-Ingunnar
Grænmetisbaka
Botn: 1 dl haframjöl 2 dl hveiti 100 gr smjörlíki 100 gr skyr 2 msk kalt vatn Grænmeti: 250 gr spergilkál 250 gr blómkál 50 gr sveppir 1 lítil græn paprika 1 lítil rauð paprika olía til steikingar Sósa: 2 stk egg 2 ½ dl rjómi 4 dl rifinn ostur Blandið saman haframjöli og hveiti, brytjið smjörlíkið út í, hrærið sykri saman við og vætið í með vatni. Hrærið vel saman og geymið deigið í ísskáp í 30-40 mín. Sjóðið spergilkál og blómkál í léttsöltu vatni í 10 mín. Sneiðið sveppina og skerið paprikurnar í bita, léttsteikið sveppi og paprikur í olíu. Fletjið deigið út og setjið í eldfast mót, sem er um 25-28 cm í þvermál, raðið grænmetinu ofan á deigskelina. Þeytið saman egg og rjóma, blandið rifna ostinum saman við, hellið blöndunni yfir grænmetið. Bakið við 180-200°C í 30 mín og berið fram.
»
25.01.2011 22:35:23 / Saelkeraklubbur-Ingunnar
Lasagne með kotasælu
12 stk lasagneplötur 3 stk laukur saxaður 2 stk hvítlauksgeirar pressaðir eða fínsaxaðir 1 msk matarolía 500 gr dósatómatar ½ dl tómatmauk salt, pipar, oregano, timian, basilkum. 3-400 gr kotasæla 100 gr rifin ostur Kraumið lauk og hvítlauk í olíunni smá stund. Bætið tómötum og tómatmauki saman við og kryddið hæfilega, sjóðið í 10 mín. Takið af hitanum og hrærið kotasælunni saman við. Leggið lasagneplöturnar og sósu í lögum í eldfast mót. Stráið osti yfir hvert lag. ATH. Lagsangeplöturnar eiga að vera neðstar síðan þykkt lag af sósu með rifnum osti. Bakið í 20-25 mín við 200-225°C.
»
07.01.2011 15:54:30 / Saelkeraklubbur-Ingunnar
Smurt brauð
Rækjur. Fransbrauð skorið undan hringlaga móti, smurt með smjöri eða majones. Rækjum raðað á brauðið (það á ekki að sjást í brauðið). Skreytt með majones, sítrónu, kavíar, tómötum og steinselju. Reyktur lax. Fransbrauð skorið undan hringlaga móti, smurt með smjöri eða majones. Laxinn skorinn í þunnar sneiðar og settur þannig á sneiðina að hann rísi upp í miðjunni og passað að hann hylji brauðið. Skreytt með hrærðu eggi, aspas, tómötum, ólífum, steinselju, dilli og papriku. Hangikjöt Heilhveiti- eða maltbrauð sem búið er að fjarlægja skorpuna af er smurt, kjötsneiðum er raðað ofan á og skorið í ferning, síðan í tvennt þannig að myndi þríhyrning. Skreytt með ítölskusalati, ca. 1 tsk. á hverja sneið, gúrkusneiðum, gulrótum, tómötum, sveskjum, vínberjum, aspas, mandarínubátum, harðsoðnu eggi og steinselju. Skinka Heilhveiti- eða maltbrauð sem búið er að fjarlægja skorpuna af er smurt, kjötsneiðum er raðað ofan á og skorið í ferninga, síðan í tvennt þannig að myndi þríhyrning. Skreytt með ávaxtasalati, ítölskusalati, ananas, koktelberjum, smáttskornum ávöxtum, gúrku, steinselju og sveskju Roastbeef Maltbrauð er smurt, kjötsneiðum er raðað ofan á og skorið í ferninga, síðan í tvennt þannig að myndi þríhyrning. Skreytt með remolaði, steiktum lauk, tómat, ferskju, sýrðri agúrku, papriku, sveskjum, svörtum ólífum og steinselju. Síld Hveiti- heilhveiti- eða maltbrauð, er smurt eggjasneiðum raðað ofan á, skreytt með síld (marenaðri- eða kryddsíld), agúrku, tómötum, ólífum, steinselju og dilli. Uppskriftir frá Gulla
»
28.12.2010 12:39:41 / Saelkeraklubbur-Ingunnar
Eggjakökur
3 egg fylling olía til steikingar Eggin eru hrærð saman, panna hituð eggjahræran sett út á heita pönnu og fylling sett ofan á og eggjakakan bökuð Fylling 1. 100 gr beikon skorið í sneiðar og steikt 1 stk laukur saxaður og steiktur 5 stk saxaðar kartöflur 100 gr ostur Fylling 2. 100 gr sveppir í sneiðum og steiktir 100 gr rækjur Fylling 3. 100 gr rækjur 100 gr kræklingur úr dós 100 gr aspargus Fylling 4. 100 gr skinka í bitum 100 gr rifinn ostur Fylling 5. 2 stk tómatar í sneiðum 100 gr pylsusneiðar 100 gr blaðlaukur í sneiðum Fylling 6. 100 gr sveppasneiðar 100 gr skinkusneiðar 100 gr paprikusneiðar Fylling 7. 100 gr rækjur eða kræklingur 100 gr soðnir fiskafgangar 100 gr rifinn ostur Fylling 8. 100 gr tómatar í sneiðum 100 gr eplabitar 100 gr gráðostur Uppskriftir frá Gulla
»
10.12.2010 09:45:21 / Saelkeraklubbur-Ingunnar
Sveppir í smjördeigshúsi með hvítlauk
Smjördeig 6 dl rjómi 600 gr sveppir salt og pipar eitt egg hvítlaukssmurostur 3-4 hvítlauksrif 3 msk sherry 3 msk söxuð steinselja smjör til steikingar Smjördeigið skorið í ferninga 7x7 cm. Sett á bökunarplötu og penslað með eggi, bakað við 180°C. sveppirnir hreinsaðir og skornir í fjóra helminga. Brúnið sveppina í smjörinu og bætið fínt söxuðum hvítlauk út í ásamt sherryinu og sjóðið niður. Bætið rjómanum ásamt rjómaosti saman við og sjóðið þar til hæfileg þykkt er komin, kryddið með salti og pipar ásamt saxaðri steinselju og fyllið smjördeigsferningana. Berið strax fram.
»
03.12.2010 12:43:11 / Saelkeraklubbur-Ingunnar
Innbakað grísapaté með skinkubitum
Deig: 450 gr hveiti 225 gr smjör 1 tsk salt 1 egg 5 msk volgt vatn Fars: lagað á sama hátt og grunndeig villibráðarpaté nema notað 1 kg grísahakk í staðinn fyrir villibráðarhakk. Blandið öllu saman nema vatninu og nuddið vel á milli handanna, bætið því næst vatninu smátt og smátt út í deigið og hnoðið vel saman. Rúllið deiginu út með kökukefli þannig að það verði u.þ.b. 3-4 mm að þykkt. Klippið smjörpappír þannig til að hann passi sem klæðning innan í mótið sem baka á í. Leggið smjörpappírinn síðan ofan á deigið og skerið það jafnstórt smjörpappírnum, leggið síðan smjörpappírinn og deigið í formið þannig að smjörpappírinn snúi að forminu, fyllið formið með grísapaté og bakið við 220°C í 10 mín, lækkið þá hitann í 190°C og bakið áfram í 45 mín, eða þangað til kjöthitamælir sýnir 70°C. Skerið patéið í sneiðar og berið fram með salati og týtuberjasósu
Týtuberjasósa 3 dl týtuberjasulta 1 tsk engifer, fínt saxað ½ tsk korianderfræ 2-3 msk rauðvínsedik 1 dl púrtvín eða appelsínusafi Blandið öllu saman í pott og sjóðið við vægan hita í 2-3 mín og kælið.
»
08.11.2010 11:09:06 / Saelkeraklubbur-Ingunnar
Biximatur
Soðnir eða steiktir kjötafgangar Sama magn af kartöflum Saxaður laukur um helmingur á móti kartöflunum Salt, pipar og ensk kryddsósa ef vill Afgangur af sósu Kjötið skorið í litla bita ásamt kartöflum. Laukurinn saxaður. Þetta er allt steikt á pönnu og kryddað. Sósunni blandað saman við og hitað vel. Borið fram með rauðrófum og steiktum eggjum. Hægt er að nota afganga af flestum sósum eða laga rjómasósu. Uppskrift frá Gulla
»
14.09.2010 17:22:55 / Saelkeraklubbur-Ingunnar
Krebinettur
750 gr lambahakk 500 gr nautahakk 4-5 dl brauðrasp 3 dl mjólk 2 stk egg ½ blaðlaukur 1 msk karrý 1 msk soyasósa 1 tsk grillkrydd ¼ tsk pipar 1 tsk hvítlaukssalt Eggi, brauðraspi og mjólk blandað saman við hakkið. Blaðlaukurinn saxaður og honum blandað saman við ásamt kryddi. Hakkblandan er mótuð í sporöskjulaga kökur sem velt er upp úr brauðraspi (veltið öllum kökunum upp úr raspinu áður en byrjað er að steikja). Kökurnar steiktar á pönnu og settar í ofnskúffu og gufusteiktar í 15-20 mín við 140-150°C. Uppskrift frá Gulla 
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
Heimsóknir
Í dag: 50 Alls: 556458
|