Áhugavert
01.01.2010 15:26:29 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Súkkulaði og möndlukonfekt


Súkkulaði og möndlukonfekt

u.þ.b. 50 bitar
einfalt og æðislega gott!
250 gr smjör
2 dl mjólk
50 gr kakó
4 tsk vanillusykur
1 kg flórsykur
90 gr möndlur, flysjaðar og hakkaðar
Skerið smjör í bita og setjið í pott ásamt mjólk, kókói, vanillusykri og flórsykri. Hrærið í þar allt hefur blandast vel saman. Hitið að suðu og látið malla í stutta stund eða þar til blandan nær 1161c, hrærið stöðugt í á meðan. Takið pottinn af hellunni og látið blönduna kólna í 5 mín. Hrærið kröftulega í 2-3 mín. Með sleif þar til hún fer að þykkna. Bætið möndlum út í og blandið vel saman. Hellið blöndunni í vel smurt form (20x25 cm) og geymið í kæli þar til hún hefur stífnað eða í u.þ.b.2-3 klst. Skerið í litla bita og njótið! Konfektið má geyma í lofþéttu íláti í kæli í allt að 2 vikur.

» 14 hafa sagt sína skoðun

30.12.2009 01:22:53 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Sparikúlur.


Sparikúlur.

6 dl. haframjöl
200 gr. smjör
3 dl. flórsykur
2 tsk. vanillusykur
4 msk. kakó
1 1/2 dl. saxaðar rúsínur
2 dl. kókósmjöl
2 msk. vatn

Handfjatlað saman og búnar til kúlur. Flott að setja í konfektform.

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.12.2009 01:33:37 / Saelkeraklubbur-Ingunnar

Rjómakaramellur


Rjómakaramellur

25 stk
3 dl rjómi
3 dl síróp
3 dl sykur
Setjið allt hráefni í pott og látið sjóða í u.þ.b. 25-30 mín. Hrærið í á meðan. Það er ágæt leið að athuga hvort karamellan er tilbúin að setja prufu af henni í litla skeið og stinga henni í kalt vatn í glasi. Ef hægt er að gera kúlu úr karamellunni er hún tilbúin. Hellið karamellunni í smjörpappísklætt form. 20x20 cm á kant. Látið kólna og skerið svo í bita.

» 0 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  54  Alls: 555119
Klukkan