Cream anglis (vanillukrem)
Ábætisréttir
Hentar með margskonar ábætisréttum...rosa gott!
Efni:250 gr mjólk 250 gr rjómi 4 stk eggjarauður 100 gr sykur 1 vanillustöng
MeðhöndlunMjólk, rjómi, 50 gr sykur og vanillustöng látið í pott og hitað upp að suðu. Eggjaraður og 50 gr af sykrinum pískað saman. Síðan er rjómanum hellt mjög varlega yfir eggin og blandan þykkt í vatnsbaði að vild. Hrærið stanslaust í blöndunni með sleikju annars hlauða eggin. Hitið ekki yfir 70°. Berið fram kalt.
p.s. hægt er að bæta margskonar bragðefnum út í í staðin fyrir vanillustöng... s.s. kaffi, bönunum, kanil. osfrv.
Uppskrift frá Gulla 