Mangó drykkur
Fyrir 4
1 mangó, skorið í bita
2 ½ dl kalt vatn
2 ½ dl jógúrt eða AB-mjólk
2 tsk hrásykur
Nýmalaður svartur pipar á hnífsoddi
Setjið mangó í matvinnsluvél eða blandara ásamt helmingnum af vatni og hrærið vel saman. Bætið jógúrti, sykri og afganginum af vatninu saman við og hrærið áfram þar til blandan er orðin mjúk og froðukennd. Hellið í glös, stráið pipar yfir og berið fram strax.