Tortilla/taco skel með hakki
4 skammtar
400 gr hakk
1 msk matarolía til steikingar
1 poki Casa Fiesta Taco seasoning mix kryddblanda
1 ½ dl vatn
1 pk.Casa Fiesta Flour Tortillas flatkökur
1 dós mais
2 dl rifinn ostur
3 tímatar, hakkaðir
½ höfuð jöklasalat
MEÐLÆTI:
1 dós Casa Fiesta Guacamole Dip
1 dós Casa Fiesta Taco salsasósa
AÐFERÐ:
Steikið hakkið í matarolíunni. Bætið kryddinu út á og vatni. Sjóðið í 5-8 mín án loks og hrærið reglulega í. Berið hakkið fram í tacoskel eða flatkökum og bætið við það mais, rifnum osti, tómötum og salati. Setjið guacamole og salsasósu ofan á.